fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því að nota tækifærið til að þakka hv. þingmanni fyrir sígræna ræðu. Ég segi það vegna þess að nú erum við búnir að vera saman á þingi í næstum því fimm ár og ég þykist hafa heyrt sambærilegar ræður hjá bæði hv. þingmanni og mér sjálfum og ýmsum kollegum okkar á þessum tíma, að það sé ýmislegt að; nýsköpunarmálin séu ekki í mjög góðu ásigkomulagi, gjaldmiðillinn okkar sé hálfgert rusl. Það er langur listi, sem hv. þingmaður fór mjög vel yfir í ræðu sinni, af vandamálum sem þarf að laga. Ég er sammála greiningu hans, algjörlega. En ég kemst samt ekki hjá því að velta því fyrir, þegar ég sé þar nánast engan árangur eftir fimm ár, af ýmsum ástæðum sem er bæði þessari og síðustu og jafnvel þarsíðustu og mörgum ríkisstjórnum þar á undan að kenna, hvernig við ætlum að laga þetta. Planið sem hv. þingmaður flutti í ræðu sinni snerist um að binda krónuna við evruna eða taka upp evruna og redda nýsköpun. Ókei, flott. En þetta hljómar eins og tímaáætlun upp á fjögur til átta ár. Hvernig lítur tímalínan út varðandi það að gera stóru, nauðsynlegu kerfisbreytinguna nægilega hratt svo við séum ekki — ja, ég verð ekki hér eftir næstu kosningar en einhverjir verða hér. Hvernig gæti þetta plan litið út þannig að það sæist einhver árangur að ráði eftir fimm ára tímabil eða fjögurra ára eða hvað það nú er? Ég óttast það svolítið að við séum einhvern veginn alltaf að hringsnúast á sama punktinum vegna þess að það er alltaf verið að eltast við einhverjir galdralausnir í staðinn fyrir að taka þau atriði sem ætti að vera auðveldara að laga.