kostnaður við samræmda móttöku flóttafólks.
Forseti. Ekki alls fyrir löngu spurði ég hæstv. ráðherra hvort eðlilegt væri að gera ekki ráð fyrir kostnaði við það að tryggja öllum sem hér fá hæli eða dvalarleyfi sömu styrki og þjónustu og veitt er kvótaflóttamönnum. Mér fannst hæstv. ráðherra deila áhyggjum mínum að verulegu leyti. En í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn hv. þm. Önnu Kolbrúnar Árnadóttur vegna vinnu í velferðarnefnd víkur ráðuneytið sér undan því að svara meginspurningunni, þ.e. hvaða kostnaður muni af þessu hljótast, og vísar á félagsmálaráðuneytið. Ég fæ ekki séð að þetta standist lög um opinber fjármál. Ég veit að þegar er veitt mikil þjónusta öllum þeim sem fá hér hæli eða dvalarleyfi, líklega einhver sú mesta sem fyrirfinnst og að því marki að ásókn í hæli hér er orðin hlutfallslega sexfalt meiri en í Danmörku og Noregi. Við höfum hins vegar einbeitt okkur að því og lagt metnað í það að taka vel á móti kvótaflóttamönnum sem eiga m.a. rétt á fjárhagsaðstoð, félagslegri ráðgjöf, húsnæði, menntun, leikskólakennslu, tómstundastarfi, heilbrigðisþjónustu, tannlækningum, þjónustu túlka, síma o.s.frv.
Því spyr ég hæstv. ráðherra: Er það skoðun ráðherra að það hafi engan kostnað í för með sér að margfalda þann fjölda sem á rétt á þeirri fjárhagsaðstoð og þjónustu sem við veitum kvótaflóttamönnum? Í öðru lagi: Telur hæstv. ráðherra að þetta muni ekki hafa nein áhrif á þann fjölda sem mun leita hingað umfram önnur lönd á sama tíma og önnur Norðurlönd eru að reyna að hindra hælisumsóknir og beina öllum í kvótaflóttamannakerfið?