kostnaður við samræmda móttöku flóttafólks.
Virðulegi forseti. Því er auðsvarað. Ef við aukum réttindin til að fá stuðning þá mun það kosta peninga. Ég held að við þurfum bara að horfast í augu við það að í þessu kerfi á undanförnum árum hefur málsmeðferðartíminn, sem ég gerði að umtalsefni hér um daginn, kostað okkur alveg óheyrilega mikla peninga, þ.e. að vera með svona marga í langri bið eftir endanlegri niðurstöðu máls hefur kostað okkur marga milljarða á hverju ári. Þess vegna hef ég talað fyrir því að við skerpum á þeim tilfellum þar sem við eigum að geta komist hratt að niðurstöðu, við einföldum ferlið til að klára hraðar mál sem allan tímann voru líkleg til að enda með höfnun. Við höfum opnað of víða í kerfinu fyrir kærur sem geta dregið málin og endanlega niðurstöðu þeirra á langinn og ég held að það sé kannski einkum þar sem við skerum okkur úr í samanburði við önnur ríki sem vinna að þessum málum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, að möguleikarnir til að fá endurupptöku og frekari skoðun sinna mála séu fleiri í íslenska kerfinu. Það getur valdið alveg sérstaklega miklum kostnaði.
Þegar kemur hins vegar að þeim málum sem við höfum skrifað út og göngumst við að þurfi að skoða þá þurfum við að hafa einhverja sýn á það og einhverja skoðun á því við hvaða aðstæður er boðlegt að það fólk búi í millitíðinni. Mér finnst að þessi umræða mætti kannski snúast aðeins skýrar um það, í hverju breytingin liggur. Við getum ekki verið með fólk hérna sem bara (Forseti hringir.) ráfar um göturnar tekjulaust á meðan það bíður úrlausnar sinna mála.