aðgerðir skæruliðadeildar Samherja.
Virðulegi forseti. Mér finnst ástæða til að halda áfram umræðu um aðgerðir skæruliðadeildar Samherja, umræðu um hugmyndir þeirra um hvernig þeir geti haft áhrif á úrslit í formannskjöri Blaðamannafélags Íslands og aðrar aðgerðir sem komið hafa fram í dagsljósið síðustu daga. Þetta finnst mér þurfa að ræða hér á þessum vettvangi einfaldlega vegna þess að staða fjölmiðla er spegill á stöðu lýðræðis í hverju samfélagi. Eitt er að hagsmunaöfl reyni að hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun, eins og Samherji gerir og reyndar hvernig þeir gera það. Það gera þeir nefnilega ekki með því að taka sjálfir þátt í opinni umræðu heldur með því að reyna að fara inn í Blaðamannafélagið með óeðlilegum hætti og hlutast til um starf félagsins. Það er alvarlegt.
Í gær sat þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Kastljósi þar sem mátti á honum skilja að það væri ekkert við vinnubrögð Samherja að athuga. Hann talaði um aðgerðir skæruliðadeildarinnar sem skoðanir. En þetta mál snýst auðvitað ekki um skoðanafrelsi heldur það hvernig hagsmunahópar beita völdum sínum til að reyna að hafa óeðlileg áhrif í samfélaginu bak við tjöldin. Að svipta þessar aðgerðir og starfshætti öllu samhengi er hættulegt, dálítið eins og að segja t.d. um árásir eða ofsóknir að það séu tvær hliðar á málinu. Það er ekki þannig í þessu máli. Hér eru gerendur og hér eru þolendur. Skotskífan er fjölmiðlar í landinu en um leið allur almenningur. Skoðanir og árásir eru óskyldir hlutir.
Þetta dregur upp dökka mynd. En vegna orða hæstv. fjármálaráðherra fyrr í vikunni um að menn gangi hér mjög langt þá vil ég spyrja hann núna, vegna þess að svarið skiptir máli, hvort það sé ekki örugglega þannig að formaður Sjálfstæðisflokksins sjái samhengi hlutanna í þessum aðgerðum, hvort hann sjái ekki hvers eðlis þessar aðgerðir Samherja eru.