151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

aðgerðir skæruliðadeildar Samherja.

[13:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að það sé alvarlegt mál ef fyrirtæki telja sig vera í þeirri stöðu að geta hlutast til um formannskjör í Blaðamannafélaginu eða á öðrum slíkum vettvangi, í stjórnmálum eða annars staðar. Við förum þá leið í Sjálfstæðisflokknum að halda prófkjör. Við hleypum öllum flokksmönnum að. Það kemur í veg fyrir að menn geti beitt óeðlilegum þrýstingi nema menn hafi enga stjórn á því hvaða fjármunir eru settir í einstök framboðsmál. Ég hef tjáð mig …(Forseti hringir.)

(Forseti (SJS): Ég vil biðja menn að hætta samtölum í hliðardyrum.)

Ég hef tjáð mig um það að ég telji að í þessu máli hafi verið gengið mjög langt. Ég ætla ekki að mæta hingað í þingsal til að upplýsa hv. þingmann um það hvað mér finnist um það sem aðrir þingmenn í Sjálfstæðisflokknum segja. Það er nóg tækifæri fyrir hv. þingmann til að ræða við þá hér undir störfum þingsins eða annars staðar, ég veit ekki hvar sú umræða á best heima. En ég horfði ekki á Kastljóssþáttinn og er ekki mættur hingað í dag til þess að gera upp fréttir gærkvöldsins eða einhverja viðtalsþætti í Ríkisútvarpinu. Ég er mættur hér sem fjármálaráðherra og hef tjáð mig um það mjög skýrt að ég tel að Samherji hafi gengið óeðlilega fram í þessu máli með sínum afskiptum.