aðgerðir skæruliðadeildar Samherja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Spurningin laut að afstöðu hans sjálfs í samhengi við orð þingmanns í hans þingflokki. Það er áhugavert að hann nefni prófkjör í þessu samhengi því það liggur auðvitað fyrir hver nálgun Samherja er á prófkjör í Sjálfstæðisflokknum.
Mig langaði í þessu samhengi að nefna líka nýleg orð seðlabankastjóra, sem vöktu mikla athygli, kannski ekki vegna þess að hann væri að færa okkur nýjan sannleik þar heldur sagði hann það sem mjög margir hafa hugsað, með leyfi forseta:
„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum og það er meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá.“
Þessi orð hafa verið nefnd hér áður en eru að fá á sig nýjan blæ í ljósi nýjustu fregna af aðgerðum þessarar skæruliðadeildar. Í þessu ljósi er óneitanlega áhugavert að skoða tillögu stjórnarinnar um nýtt auðlindaákvæði, ákvæði sem tryggir ekki tímabundna nýtingu eða eðlilegt gjald og maður spyr sig: Hverra hagsmuna er gætt með því ákvæði? Það er jú þögult um þetta helsta ákall almennings. (Forseti hringir.) Er ákvæðið sett upp til að verja þjóðareign þjóðarinnar eða þjóðareign hinna fáu?