151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

aðgerðir skæruliðadeildar Samherja.

[13:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Varðandi sjávarútveginn þá stendur hann gríðarlega vel. Það er þjóðarhagur að sjávarútveginum gangi vel, að það verði til mikil verðmæti úr auðlindinni. Það skiptir ofboðslega miklu máli. Í nýrri skýrslu sem sjávarútvegsráðherra var að gefa út kemur fram að í samanburði milli þjóða stendur Ísland fremst og sóknarfærin eru ómæld en ósótt. Auðlindaákvæðið ver þá hagsmuni að enginn getur fengið til varanlegrar eignar nýtingarrétt á sameiginlegum auðlindum. Það er skýrt. Um það hefur 1. gr. laga um stjórn fiskveiða fjallað og það er fært inn í stjórnarskrána með þeirri tillögu sem nú liggur fyrir þinginu frá forsætisráðherra. Hv. þingmaður lætur að því liggja að það verði ekki varið með öðrum hætti en þeim að kveða á um tímabundnar heimildir. En þær geta verið ótímabundnar en afturkallanlegar. Það er í raun og veru skýringin á því sem hún er að kalla eftir og það er rakið mjög vel í frumvarpinu.