fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Mig langaði að fara aðeins yfir breytingartillögur Samfylkingarinnar, sérstaklega á sviði umhverfismála. Það eru 5 milljarðar þar í viðbót við umhverfismál. Ég fór hér yfir umhverfismálin og þau gögn sem maður sér í fjármálaáætluninni en í rammagrein 11 er fjallað um það hvernig fjárheimildir hafa þróast til umhverfismála í tíð þessarar ríkisstjórnar og hvernig gert er ráð fyrir þeim í fjármálaáætlun. Að meðaltali er í þessari fjármálaáætlun gert ráð fyrir um 10 milljörðum á ári til að ná fyrri stefnu ríkisstjórnar um 40% samdrátt. Hins vegar er nýbúið að uppfæra þá stefnu í 55% og til þess að ná þeim samdrætti leggur ríkisstjórnin til 1 milljarð í viðbót. Það er 1 milljarður til að ná 15% samdrætti, 10 milljarðar til að ná 40% samdrætti. Ég fór yfir þetta með hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur í gær og ekki náðist alveg skilningur á því hvernig þetta dæmi gengur upp því að samkvæmt lögum um opinber fjármál eigum við að byrja á skilvirkustu og ódýrustu verkefnunum sem skila okkur mestum árangri. Og augljóslega ættum við að byrja á verkefnum þar sem við náum 15% samdrætti fyrir 1 milljarð kr., það væri æðislegt, en ekki byrja á 40% samdrætti fyrir 10 milljarða.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig Samfylkingin sér fyrir sér að ná þessu markmiði með 5 milljörðum. Er það nægt fjármagn eða hvernig er áætlunin þarna á bak við hjá Samfylkingunni?