151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[14:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir ágæta spurningu. Nei, ég held ég verði að gangast við því að þetta er ekki nægt fjármagn. Ég lagði líka áherslu á það í ræðu minni að við værum að reyna að greiða yfir skallablettina á hvirfli fjármálaáætlunarinnar en ekki að leggja fram heildstætt plan. Ég held yfir höfuð að það verði að fara með miklu einbeittari, markvissari og metnaðarfyllri hætti í gegnum kjörtímabil á sviði loftslagsmála en hefur verið gert hjá þessum hæstv. umhverfisráðherra. Það er áhugavert sem kemur fram í fyrirspurn hv. þingmanns að það hefði verið skynsamlegast að leggja mesta áherslu á það sem í rauninni skilar mestri losun fyrir minnsta peninginn. Hvar er sú vinna í ráðuneytinu? Hvar höfum við séð eitthvert yfirlit yfir hvernig þetta hefur markvisst verið skoðað? Ég held að þrátt fyrir að bætt hafi verið í — þó það nú væri, segi ég — og þótt menn gorti sig af hárri prósentuhækkun úr engu þá eru tölurnar sem fara í þetta svo ótrúlega lágar. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál hefur áætlað að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu árlega til loftslagsmála. Ég ímynda mér að við séum ekki sér á báti þar, tala nú ekki um þegar um er að ræða þjóð sem í rauninni er kannski neyslufrekari en flestar ef ekki allar þjóðir í heiminum. Þannig að nei, þessir 5 milljarðar munu örugglega ekki duga, en við settum það fram. Þetta er há tala, það er hægt að gera ýmislegt fyrir hana og hún er auðvitað líka áminning um það til ríkisstjórnarinnar að hún er að vanmeta vandann.