151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[16:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég ætla ekki að standa hér og segja að ég hafi einhverja miklu meiri reynslu eða þann samanburð sem þarf til að segja að hér sé allt betra með lögum um opinber fjármál, síður en svo. Ég kom inn á þing 2013 og ferlið í undirbúningi að þeim lögum byrjaði miklu fyrr. Ég hef svo sem ekki mikla sögu að segja í einhvern samanburð.

Ég ætla að staldra við svar hv. þingmanns og aðeins það sem hann kom inn á í ræðu sinni. Nú er ég kannski í þeim sporum að reyna að einfalda hlutina af því að hér varpar hv. þingmaður fram mjög athyglisverðum spurningum. Við erum með fjármálareglur sem við erum búin að afvirkja. Er 30% endilega eitthvert heilagt skuldahlutfall? Og hvar er bilið í sjálfbærni ríkisfjármála? Við förum einhvers staðar á bilinu 50–60%, eftir því hverju fram vindur núna, inn á þessa áætlun og við erum lítið opið hagkerfi. Yfirleitt er talið að lægra skuldahlutfall sé nauðsynlegt fyrir sjálfbærni lítils, opins hagkerfis með einhæfa atvinnuvegi.

Þá er ég kominn að kjarna þess sem hv. þingmaður kom inn á, við þurfum að auka fjölbreytnina. Það er nýsköpunarþátturinn sem hv. þingmaður fór mjög vel yfir í sinni ræðu sinni. Mér heyrist í umræðunni vera mikill samhljómur með því að við þurfum að auka fjölbreytnina þannig að vægi ferðaþjónustunnar verði ekki jafn mikið. Þá er ég kominn að þeirri hagfræði sem hv. þingmaður kom inn á, að við séum að auka útgjöldin svo mikið þegar er samdráttur til að milda sveifluna og svo öfugt þegar er uppsveifla. Þá búum við svo vel að hafa vel hönnuð skattkerfi og bótakerfi og alla jafna ættu þau að jafna þetta í eðlilegu viðbragði. En við erum ekki í neinni eðlilegri kreppu þannig að umfangið er bara svo miklu meira og við neyðumst til að bregðast við með afkomubætandi aðgerðum, (Forseti hringir.) hvort heldur á tekju- eða gjaldahlið, samhliða sjálfvirku sveiflujöfnurunum.