151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[16:46]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð satt að segja aðeins að fá að melta það síðasta sem hv. þingmaður sagði vegna þess að ég held að í því sé ákveðinn sannleikur. En ég þarf aðeins að ná að átta mig á því. Við erum kannski ekki ósammála um að þetta sé tilfellið en það sem ég er að gagnrýna er að ef maður mælir rangan hlut og setur markmið á röngum mælikvarða þá getur maður fengið kolranga niðurstöðu eða í rauninni hvaða niðurstöðu sem manni hentar. Ég óttast að það að setja allan fókusinn á stöðu ríkisskulda hverju sinni og magn ríkisútgjalda hverju sinni sé í grundvallaratriðum röng hugmyndafræði sem skilar af sér veikara samfélagi yfir hvaða tímabil sem er, hvort sem við erum í uppgangstímabili eða niðursveiflu. Ég held, og ég hef reyndar sagt það nokkrum sinnum, að það væri miklu betra að mæla hluti eins og t.d. hver framleiðsluspennan er hverju sinni. Að mæla framleiðsluspennuna og reyna að halda henni jafnri er miklu betra markmið. Það er líka miklu betra markmið að mæla t.d. útflutningsverðmæti og setja útflutningsaga í hagkerfið okkar. Þetta væru markmið sem ég held að myndu skila sér miklu betur fyrir alla. Þetta eru vissulega ofureinfölduð markmiðið ef maður setur þetta svona fram og við gerumst öll sek um að einfalda hlutina fyrir okkur en ef við ætlum að einfalda hlutina, (Forseti hringir.) gerum það alla vega á allra besta mögulega veg frekar en að detta í einhverjar nýklassískar hagfræðihugmyndir um það hvað ríki eigi að skulda mikið eða (Forseti hringir.) … til eða frá.