151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[17:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Haraldi Benediktssyni andsvarið. Þetta er málefnasvið 25 í nefndarálitinu og fór ekki fram hjá mér. Einmitt á þeim nótum sem hv. þingmaður kom inn á þá er málinu vísað aðeins áfram. En skildi ég hv. þingmann rétt, er hann að vísa til fjárauka næsta hausts hvað úrlausn mála varðar eða er væntanlegur viðbótarfjárauki, af því að ég sit ekki í fjárlaganefnd, fyrir þessi þinglok sem tekur á því? En punkturinn er samt sá hinn sami, sem er dreginn fram í viðtali við framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Eybjörgu Hauksdóttur, í Morgunblaðinu í morgun, að ekki er gert ráð fyrir auknum fjárveitingum vegna vandans í fjármálaáætlun. Í því samhengi er horft til þess tímabils sem fjármálaáætlun nær yfir, næstu fimm ára, og það heyrist mér á andsvari hv. þingmanns að sé bara raunin. Ég hef alveg fullan skilning á því að þetta er ekki einfalt mál að eiga við og þessi vandi er a.m.k. tvíþættur og sennilega fjölþættari en það. En það breytir því ekki að hjúkrunarheimilin landið um kring og þá sérstaklega þau sem eru sjálfseignarstofnanir, held ég að sé óhætt að segja, eru að fótum fram komin. Við sjáum bara uppsagnir þeirra sveitarfélaga sem koma að rekstri hjúkrunarheimila. Ég nefni Akureyri sem dæmi. Þetta er staða sem ég held að hefði þurft að taka á með skýrari hætti núna því að skýrsla hópsins sem Gylfi Magnússon fór fyrir liggur núna fyrir og ég held að það blasi við að bara út frá niðurstöðum hennar hefði verið (Forseti hringir.) ekki aðeins forsvaranlegt heldur nauðsynlegt að senda þau skilaboð inn í umhverfið að á þessum vanda yrði tekið og það væri raunverulegur skilningur á honum.