151. löggjafarþing — 102. fundur,  27. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:20]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Af hverju finnst ykkur eðlilegt að fólk sem fötlunar sinnar vegna þarf að lifa á tekjum úr almannatryggingakerfinu sé dæmt til fátæktar? Svona hljómaði spurning úr sal á ansi merkilegu þingi Öryrkjabandalagsins sem fram fór í gær. Á þessu málþingi var kynnt ný skýrsla Stefáns Ólafssonar sem dró enn einu sinni upp þá mynd af íslensku samfélagi að þeir sem helst þurfa á stuðningi að halda séu skildir eftir þegar kemur að nauðsynlegum fjárframlögum. Bilið milli lágmarkslauna og grunnlífeyris hefur aldrei verið lengra. Skerðingarnar bitna harkalega á þeim sem síst skyldi og börn eru send út af heimilum við 18 ára aldur þar sem kerfið reiknar svo til að þau hljóti nú að reka heimilin í félagi við foreldri sitt við þau tímamót að þau verða 18 ára gömul. Það er ójafnrétti, herra forseti, í okkar ríka samfélagi sem því miður sér ekki fyrir endann á ef núverandi ríkisstjórn fær að ráða.

Fjármálaáætlun 2022–2026 er stefnuplagg ríkisstjórnarinnar næstu fjögur árin. Það er það sem við þurfum að muna þegar við göngum til kosninga í haust, þessir þrír flokkar, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, hafa lagt spilin á borðið, sýnt okkur hvernig þeir sjá fyrir sér að skipta gæðum landsins, hvernig þeir sjá fyrir sér að reka hér innviði samfélagsins. Fagurgalar í aðdraganda kosninga breyta engu af því að hér eru það verkin sem tala. Það er hérna sem við sjáum hvernig flokkarnir ætla að skipta gæðunum. Þetta er þeirra pólitíska sýn í verki. Já, svona ætla þeir að skipta kökunni.

Það voru hörð og mjög ákveðin orð sem féllu á málþingi Öryrkjabandalagsins í gær þegar rætt var um heimsmet okkar Íslendinga í skerðingum gagnvart lífeyrisþegum. Heimsmet er venjulega eitthvað sem við erum stolt af. En þegar kemur að heimsmeti í að koma illa fram við fátækt fólk þá er það varla eitthvað sem ríkisstjórn Íslands er stolt af — eða hvað? Við í Samfylkingunni leggjum einfaldlega til hækkun á grunnlífeyri enda hefur lífeyrir ekki fylgt launaþróun í landinu, alls ekki. Það þarf að hækka grunnlífeyrinn. Það er bara þannig. Það að dæma fólk til fátæktar, eins og birtist í aðgerðum ríkisstjórnarflokkanna, m.a. í þessari fjármálaáætlun til fimm ára, er ekki náttúrulögmál, herra forseti. Það er rammpólitísk ákvörðun þessara þriggja stjórnmálaflokka, Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Við verðum að muna að ákvörðun um að spara á þessum pósti leiðir til mikilla útgjalda annars staðar í annars þungu kerfi því að velferðarþjónustan er kostnaðarsöm. Og hún verður enn dýrari þegar hópar eru skildir eftir í fátækt.

Heilbrigðisþjónustan er einnig gríðarlega kostnaðarsöm. Heilbrigðisþjónustan verður einnig enn dýrari hluti og enn þyngri hluti, stærri hluti ríkisútgjalda, þegar við tökum ákvörðun um það hér að skilja hópa eftir í fátækt. Það að láta lífeyri fjarlægjast lágmarkslaun svona mikið og skattleggja þar að auki lífeyri með þeim hætti að það leiði til aukins kostnaðar um allt kerfið vegna fátæktar þessara hópa er óskaplega heimskuleg ráðstöfun, herra forseti, af því að það verður aukinn kostnaður um allt kerfið þegar við dæmum hópa til fátæktar, þegar við dæmum einstaklinga til fátæktar, ekki bara fyrir þessa einstaklinga heldur líka börnin þeirra sem búa við fátækt og taka þá reynslu sína og þær aðstæður með sér út í lífið. Þessu, herra forseti, verður að linna.

Varðandi fjármálaáætlun vekur furðu mína hið gegndarlausa metnaðarleysi sem birtist varðandi úrlausnir á einmitt kostnaðarsömum aðgerðum, kostnaðarsömum liðum. Vil ég þar helst nefna öldrunarþjónustuna sem er stór partur og fer sístækkandi vegna þess að þjóðin er að eldast. Okkur hættir allt of mikið til að tala um málið sem vanda hjúkrunarheimilanna og fráflæðisvanda á Landspítala. Við skulum aðeins staldra við og hugsa hvernig okkur sjálfum og aðstandendum okkar myndi líða ef alltaf væri talað um okkur og heimili okkar sem vandamál. Þetta er ekki vandamál, þetta er verkefni og okkur ber skylda til að sinna því verkefni af kostgæfni.

Það fjármagn sem stjórnvöld ákvarða til reksturs hjúkrunarheimila hefur um margra ára skeið verið umfjöllunarefni á Alþingi. Árum saman höfum við haft fregnir af því að of naumt sé skammtað til rekstursins og árum saman hefur verið um það rætt að fara þurfi gaumgæfilega ofan í hver raunverulegur kostnaður sé við hvert rými. Það var einmitt þess vegna, herra forseti, sem það var kærkomið að fá skýrslu svokallaðrar Gylfanefndar í hendur fyrir rúmum mánuði og lesa þar svart á hvítu að rekstraraðilar sem höfðu verið að benda á þetta árum saman, á þær nöturlegu staðreyndir að fjárframlag ríkisins með þessari lögbundnu þjónustu væri ekki í neinum tengslum við raunveruleikann, hefðu rétt fyrir sér. Taprekstur flestra hjúkrunarheimila hefur verið viðvarandi og þá skiptir engu máli hver það er sem rekur heimilið. Hvorki einkaaðilar né sveitarfélög virðast komast ósködduð frá þessu fjárhagslega séð. Við sjáum öll að það gengur auðvitað ekki. Það er fyrirséð að hjúkrunarheimilin verða gjaldþrota ef við bregðumst ekki við núna. Ég er ekki að mála skrattann á vegginn. Þetta er bara það sem blasir við og óháð skýrsla Gylfanefndar sýnir það. Það þarf að bregðast við þessu strax með raunverulegum aðgerðum.

Hæstv. heilbrigðisráðherra leyfði sér í umræðu um þessa téðu skýrslu, spurð um viðbrögð stjórnvalda við þeim nöturlegu staðreyndum sem blöstu við, að benda á að fjárveitingavaldið væri Alþingi og það væri þess að laga stöðuna. Í dag, á málþingi hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, benti hv. þm. Haraldur Benediktsson, varaformaður fjárlaganefndar, á það í máli sínu að lög um opinber fjármál ætli hverjum ráðherra að vera fjármálaráðherra sinna málaflokka og að fagráðherrar skipti fjármunum, hækkun eða lækkun, á milli málaflokka og þeir hafi ýmis tæki til að ná fram markmiðum og stefnu. Nú skulum við aðeins staldra við. Heilbrigðisráðherra bendir á þingið. Varaformaður fjárlaganefndar bendir á hæstv. heilbrigðisráðherra. Hér á Alþingi eru það stjórnarflokkarnir sem fara með meiri hluta. Þeirra er valdið en þeir taka við fjárlögum og fjármálaáætlun, eins og þeirri sem við ræðum hérna í dag, frá fjármálaráðherra og þingmenn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks skipa meiri hluta fjárlaganefndar, og taka svo við breytingartillögu frá sama fjármálaráðherra.

Herra forseti. Ég veit ekki hver það er sem stjórnar. Varaformaður fjárlaganefndar bendir á heilbrigðisráðherra og heilbrigðisráðherra bendir á þingið. En ég held að við getum öll verið sammála um að það er meirihlutaræði hér á þinginu. Hvort sem það eru ráðherrarnir eða meiri hluti þings þá eru það þessir þrír stjórnmálaflokkar sem bera ábyrgð á stöðunni. Þeirra er valdið. Þeir taka við fjárlögum og fjármálaáætlun. Þó að verið sé að skrifa undir samninga um ný hjúkrunarrými, sem er vissulega nauðsynlegt, þá höfum við í Samfylkingunni verið óþreytandi að benda á að nauðsynlegt er að tryggja fjármagn inn í reksturinn. Það hefur ekki verið gert. Lögbundið hlutverk Sjúkratrygginga Íslands er að kostnaðargreina þau verk sem þær kaupa af þjónustuaðilum en það virðist heldur ekki hafa verið gert með fullnægjandi hætti, því miður.

Þetta hefur allt verið í umræðu í velferðarnefnd Alþingis á undanförnum misserum með skýrslum Ríkisendurskoðunar, KPMG og nú Gylfanefndar. Sjálfur sagði Gylfi Magnússon, formaður nefndarinnar, á áðurnefndu málþingi í dag að hann hefði búist við einhverjum viðbrögðum frá stjórnvöldum við þeim staðreyndum sem komu fram í skýrslunni en því miður eru engin merki. Viðbrögðin eru helst að það þurfi að greina þetta eitthvað meira. Það eru engin merki um viðbrögð í fjármálaáætlun. Hér á að koma einhver fjárauki sem á að grípa eitthvað en það er engin framtíðarsýn.

Hvers vegna skiptir þetta máli? Hvers vegna þurfum við að taka þetta alvarlega? Jú, vegna þess að það er alveg fyrirséð að veruleg fjölgun mun verða í elstu aldurshópunum, 80 ára og eldri, á næstu árum og áratugum. Við verðum að fara að hugsa þessi verkefni til framtíðar og leita líka annarra lausna, fara í miklu meiri nýsköpun í þjónustu og búsetuúrræðum eldra fólks. Það er nefnilega verulega óskynsamleg ráðstöfun á opinberu fjármagni að hafa þetta eins og það er, að teppa Landspítalann af fólki með færni- og heilsumat. Það er heldur ekki góð þjónusta við þetta eldra fólk, sem á að fá að dvelja í heimilislegra umhverfi á sínum efri árum. Við skuldum þeim sem byggt hafa þetta samfélag sómasamlegt umhverfi og þjónustu á síðustu æviárunum. Spítali er spítali. Þrátt fyrir allt það frábæra heilbrigðisstarfsfólk sem þar starfar á er þetta spítali og hann er miklu dýrari. Að sögn fagaðila eru einungis 5–10% af eldra fólki mikið veik og þurfa mikla heilbrigðisþjónustu, 20–30% eru í viðkvæmri stöðu og 50–60% bara frekar hraust. Við þurfum að hafa það í huga þegar við skipuleggjum þjónustu og búsetuúrræði eldra fólks til frambúðar.

Stjórnvöld hafa lagt áherslu á heimaþjónustu, sem er auðvitað góðra gjalda vert en ég hef viðrað þær áhyggjur mínar að stökkið á milli heimaþjónustu og hjúkrunarheimila sé það stórt að það þurfi að hyggja með afgerandi hætti að einhverju millistigi búsetu og þjónustu. Þetta millistig er einhvers konar þjónustuíbúðir eins og við þekkjum í dag, sem eru ágætar, margar hverjar, en við ættum í næsta húsnæðisátaki stjórnvalda að hugsa um þetta sem og skipulag á heilbrigðisþjónustu af hálfu ríkisins og beina ljósinu að fjölbreyttri stöðu eldra fólks, fjölbreyttum þörfum þess og ótrúlegu litrófi af einstaklingum sem eru að komast á þetta æviskeið, sem hafa þar af leiðandi fjölbreytta þjónustuþörf. Eldra fólk sem býr eitt eða mögulega með viðkvæmari og heilsutæpari maka býr nefnilega oft hvort tveggja við mjög félagslega einangrun, óöryggi á heimilum og þegar um maka er að ræða býr eldra fólk á köflum við þyngra heimilishald en því er sjálfu hollt vegna umönnunar.

Ég var að tala um ófullnægjandi eða óskynsamlega ráðstöfun á opinberum fjármunum. Þegar við látum fólk bíða á Landspítala mánuðum saman og allt upp í ár eftir fullnægjandi úrræði, hjúkrunarheimili, þegar plássið á Landspítalanum er frá þrisvar sinnum og upp í fimm sinnum dýrara en hjúkrunarrými, hljótum við að sjá að við erum komin í þrot. Við þurfum að gera miklu betur. Við þurfum að hafa hugrekki til að stíga stærri skref til að grípa þennan hóp og þjónusta hann með sóma. Heimaþjónusta sem mætir jafnvel nokkrum sinnum á hverjum einasta sólarhring stendur fólki til boða en það er ekkert endilega það sem er því fyrir bestu, ekki svona lengi, af því að þegar slík þjónusta dugar ekki til, þá fyrst er sótt um hjúkrunarheimili. Heimilið á að vera griðastaður okkar, öruggt svæði, en margt eldra fólk finnur ekki öryggi á heimilum sínum af ótta við að detta, vera eitt ef eitthvað kemur upp á að kvöldi til eða nóttu, gleyma að slökkva á eldavél eða hreinlega óttast innbrot. Þá myndu þau mörg hver vilja vera með meiri félagsskap annarra, annarra en þeirra sem sinna heimaþjónustunni og líta inn öðru hvoru. Það er þetta sem við eigum að þora að tala um þegar við erum að skipuleggja fjármunina.

Mig langar aðeins að víkja orðum að ástandinu á bráðamóttöku. Allt kjörtímabilið höfum við rætt stöðuna þar. Í dag er staðan sú að fimm sérfræðingar hafa á undanförnum vikum sagt upp störfum á bráðamóttöku. Yfirlæknir þar hefur lýst ástandinu sem algjörlega ófullnægjandi. Hann segir að þrátt fyrir miklar yfirlýsingar og ástandsskýrslur hafi ástandið á bráðamóttöku Landspítala, sem var stóra málið rétt fyrir Covid, ekkert breyst og veirufaraldri verður ekki kennt þar um. Þetta er staðan og hefur verið staðan allt kjörtímabilið og því miður býður fjármálaáætlun ekki upp á neinar breytingar þar. Staðan er sú að 16 sjúklingar bíða inn á bráðamóttöku eftir að komast inn á aðrar deildir til að bíða þangað til þeir komast inn á hjúkrunarheimili. Það er staðan í dag. Þar af eru tíu sem hafa beðið inni á bráðamóttöku í meira en sólarhring.

Þegar ég starfaði sem lögmaður á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðis- og heimilisofbeldis þá var maður stundum með skjólstæðinga í alls konar ástandi, hlaupandi á göngunum innan um eldra fólk í sjúkrarúmum sem beið frammi á gangi. Þarna var löggan, sjúkraflutningamenn, fólk að koma til að taka skýrslur og svo við lögmennirnir, vaðandi þarna inni á milli. Þetta er algjörlega óboðlegt og við verðum að hætta að reka heilbrigðiskerfið okkar svona. Sérfræðingarnir flýja til annarra starfa. Þeir vilja sinna sjúklingum sínum vel en þessar starfsaðstæður eru því miður óboðlegar fagfólki. Við þurfum að endurraða í heilbrigðiskerfinu. Við þurfum að þora að skoða og velta við steinum en við gerum það ekki með því að skella í lás á einum stað áður en við höfum fundið lausnirnar annars staðar. Langar mig þar að minna á ástandið varðandi leghálsskimanir af því að það er ekki lausn að skella í lás á einum stað og láta sjúklinga bíða mánuðum saman í fullkominni óvissu um heilsu sína. Það er þetta, herra forseti, sem ríkisstjórn Íslands býður upp á.

Það er líka ákvörðun ríkisstjórnar Íslands — á sama tíma og barna- og unglingageðdeild glímir við langan biðlista, á sama tíma og 150 börn eru á biðlista á göngudeild barna- og unglingageðdeildar þar sem meðalbiðtími er yfir átta mánuðir, á sama tíma og 340 börn eru á biðlista hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, sem hefur það hlutverk að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði, á sama tíma og 600 börn eru á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöð — að setja 600 milljónir í geðþjónustu fyrir börn og ungmenni og setja á sama tíma 1.500 milljónir í ferðagjöf. Ég veit ekki alveg hverjir voru að kalla eftir ferðagjöfinni. Mögulega er það brýn ráðstöfun á almannafé en þegar maður horfir á þetta svart á hvítu, að meira en helmingi meira fjármagni er ráðstafað af hálfu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í 5.000 kr. ávísun sem fólk getur notað á bensínstöðvum eða einhverjum ferðamannastöðum um landið en í nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni sem glíma við geðræn vandamál, þá skilur maður ekkert í forgangsröðuninni í þessari ríkisstjórn. (Forseti hringir.)

Að lokum, herra forseti, vil ég benda á þá fráleitu stöðu sem íbúum á Suðurnesjum er boðið upp á þegar þeir hafa ekki aðgang að heilsugæslu.