fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Endurreisn heilbrigðiskerfisins — upplifun mín af þessu ástandi er sú að stjórnvöld séu í fullkomnu skjóli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Það er eins og af því að veiran er á niðurleið eða af því að það voru svo stórkostleg verkefni í málaflokknum þá sé gefið leyfi til að vanrækja öll önnur svið hans. Stórátak í geðheilbrigðismálum, eins og hefur verið talað um, er auðvitað skýrasta birtingarmynd þess hvernig sá málaflokkur er alger aukastærð þessarar ríkisstjórnar. Þegar kona með fæðingarþunglyndi þarf að bíða mánuðum saman eftir einu sálfræðiviðtali á heilsugæslu, hafi hún yfirleitt einhvern aðgang að heilsugæslu, þá segir það mér að það sé ekki fullnægjandi þjónusta. Þegar barn í neyð þarf að bíða mánuðum saman eftir þjónustu á barna- og unglingageðdeild, þá segir það okkur að þetta sé ekki í forgangi.
Nú hef ég bara talað um geðheilbrigðismálin en þau eru bara svo gríðarlega stór og þau eru úti um allt kerfið. Og aftur segi ég: (Forseti hringir.) Það er byrjað á röngum enda. Ég mun halda áfram að segja þér frá þessu, hv. þingmaður, í næsta andsvari.