151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

skimanir fyrir leghálskrabbameini.

[13:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Staðan á þessu tiltekna máli er sú að það gengur vel að senda sýni til Danmerkur og engin sýni hafa týnst eða eyðilagst á vegum heilsugæslunnar. Það ferli sem nú stendur yfir gengur því betur með hverri vikunni sem líður. Mér þykir það hins vegar afskaplega leitt að þessi yfirfærsla skyldi ekki hafa gengið sem skyldi. Ég er mjög meðvituð um hversu mikilvægt það er að þjónusta af þessu tagi sé örugg og hnökralaus. Sums staðar í löndunum í kringum okkur hefur verið farin sú leið, þegar skimanir eru færðar frá einum þjónustuaðila til annars, að skimanir liggja niðri um einhvern tíma á meðan þjónustan er færð yfir, til að allt utanumhaldið sé orðið sem best áður en það er sett í gang með nýjum hætti. Við völdum að fara ekki þá leið, heldur þá að það yrði ekkert rof á þjónustunni, að hún myndi halda áfram, sem gerir það að verkum að við höfum þurft að vinna niður kúf og líka vegna þess að ekki hafði verið unnið úr öllum þeim sýnum sem tekin voru fyrir áramót af Krabbameinsfélaginu. Biðtíminn er styttri en áður og styttist með hverri vikunni sem líður. Eins og hv. þingmaður veit þá hefur verið í vinnslu skýrsla, raunar að frumkvæði þingflokks hv. þingmanns, sem varð til þess að Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, féllst á þá beiðni mína að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulaginu. Ég vænti þess að sjá þá skýrslu á allra næstu dögum og að það geti hjálpað til og verið okkur leiðarvísir í því hvaða skref sé rétt að stíga næst. (Forseti hringir.) En ég held að það sé afar mikilvægt að flana ekki að neinu í þessu efni.