151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

skimanir fyrir leghálskrabbameini.

[13:22]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Þessari spurningu hefur í sjálfu sér verið svarað ítrekað og verður væntanlega enn svarað í skýrslu minni til Alþingis að beiðni og í samræmi við samþykkt Alþingis. Fyrst og fremst er um það að ræða að skimunarráð, og þau sem gerðu um það tillögu til mín á sínum tíma, benti á mikilvægi þess að byggja á evrópskum leiðbeiningum. Þá erum við bæði að tala um leghálskrabbameinsskimanir og brjóstaskimanir, að fella þær skimanir undir opinbera þjónustu til þess að tryggja jafnari aðgang allra að þjónustunni. Það hefur gefist mjög vel og ég er mjög ánægð með þann hluta af þeirri breytingu, þ.e. að þetta skuli vera komið til heilsugæslunnar og Landspítala. Það sem út af stendur eru álitamál sem lúta að úrvinnslu úr sýnunum sjálfum. Mér finnst því nokkuð djúpt í árinni tekið hjá hv. þingmanni að tala um að hér hafi allt farið úrskeiðis og allir séu sammála um að allt hafi verið ómögulegt, (Forseti hringir.) vegna þess að það er ekki svo. En nú skulum við skoða(HKF: Spurningin er … sýnunum til útlanda … fá málið á hreint.)— Virðulegur forseti, þá skulum við svara því þegar það liggur fyrir, þegar skýrslan hefur borist til Alþingis, og fara yfir þau rök sem þar koma fram.