151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

börn á biðlistum.

[13:26]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Í fyrsta lagi er það ekki hárnákvæmt hjá hv. þingmanni að biðlistar séu bara að lengjast. Víða er verið að vinna á þeim. Á dögunum, fyrir einhverjum vikum, var fjallað um það sem hv. þingmaður er að tala um, sem er bið eftir geðþjónustu fyrir börn, í fjölmiðlum. Greining á stöðunni, samkvæmt fréttinni, bendir til þess að annars vegar sé um að ræða það sem hv. þingmaður bendir á, sem er að geðheilbrigðismál hafi ekki fengið næga athygli undanfarin ár og því sé um uppsafnaðan vanda að ræða. En hins vegar er líka nefnt í fréttinni að um sé að ræða jákvæða vitundarvakningu í samfélaginu um mikilvægi góðrar geðheilsu. Fólk veit þannig að það á rétt á góðri geðheilsu og vill sækja sér hana. Það er mikilvægt.

Í minni ráðherratíð hafa geðheilbrigðismál verið í meiri sókn en nokkru sinni fyrr. Geðheilbrigðisþjónustan hefur verið efld á öllum þjónustustigum, t.d. höfum við komið á laggirnar þverfaglegri geðheilbrigðisþjónustu í heilsugæslu um allt land til að tryggja geðheilsuteymi óháð búsetu. Við erum í sókn og við ætlum að halda áfram þessari uppbyggingu. Samkvæmt nýjustu tillögum sem nú eru til umfjöllunar í þinginu, og koma fram í nýrri fjáraukalagatillögu, gerum við ráð fyrir að setja upp ný geðheilsuteymi í öllum heilbrigðisumdæmum fyrir börn, þ.e. þar sem fyrst og fremst er horft á þjónustu fyrir börn, og ekki síst vegna þeirrar áherslu sem hv. þingmaður er hér að kalla eftir. Geðheilbrigðismál eru mikilvæg en þau eru sennilega mikilvægust þar sem börn og ungmenni eru annars vegar.