151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

börn á biðlistum.

[13:28]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. Ég get ekki annað en verið sammála henni um að það er mikilvægt að taka á málefnum barna. En það er ákveðinn mönnunarvandi í kerfinu. Hvernig er verið að taka á honum? Álagið á þá sem eru þar fyrir er svo gífurlegt. Ég hef heyrt að álagið sé að buga marga þá sem eru í fremstu víglínu í þessu kerfi. Ég spyr: Hvernig er verið að taka á því? Og í því samhengi, er t.d. búið að semja við talmeinafræðinga? Er búið að semja við sjúkraþjálfara? Er búið að taka á því að biðlistar styttist eftir talmeinafræðingum og öðrum þeim sem hjálpa börnum virkilega, er verið að taka á því? Er verið að semja við þá? Er verið að sjá til þess að það sé ekki alltaf allt í háalofti í kerfinu? Og síðan eiga eftir að bætast inn í þetta mál vegna Covid. Er verið að taka á því líka?