151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

börn á biðlistum.

[13:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er ekki allt upp í loft í kerfinu, það er ekki þannig. Ég met það mikils ef hv. þingmaður vill halda sig við staðreyndir í því hvernig hér er spurt og svarað. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um áhrif Covid-19 á geðheilsu. Eins og áður hefur komið fram í samskiptum okkar þá erum við með sérstakan hóp sem vaktar áhrif Covid-19 á geðheilsu Íslendinga og þessi hópur var að skila sinni fyrstu stöðuskýrslu með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Þar eru niðurstöðurnar þannig að lagðar eru til nokkrar tillögur; að efla skólaheilsugæslu, að efla rafrænar lausnir í geðheilbrigðismálum, að efla þverfaglega geðheilbrigðisþjónustu heilsugæslu, sem við erum að gera, að bæta aðgengi að sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu hjá BUGL og BUGL á Akureyri, að efla skólaþjónustu, að bjóða fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni, sem við erum líka að gera, að fjölga stöðugildum í barnavernd og efla meðferðarúrræði. Allar þessar tillögur eru til skoðunar eða komnar til framkvæmda þannig að við erum, virðulegi forseti, með augun á boltanum þegar um er að ræða börn, ungmenni og geðheilsu.