hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég vil spyrja umhverfisráðherra í ljósi þess að störf umhverfis- og samgöngunefndar hafa á þessu ári litast að miklu leyti af meðferð nefndarinnar á frumvarpi hæstv. ráðherra um hálendisþjóðgarð: Í stjórnarsáttmála gaf ríkisstjórn fyrirheit um að slíkur þjóðgarður yrði að veruleika. Mikil gagnrýni hefur komið fram á málið og er þá vægt til orða tekið. Stjórnarliðar hlaupa út og suður og flagga fyrirvörum, sumum æðiseint fram komnum. En fyrst varð þetta nú undarlegt á að horfa þegar frétt birtist 9. þessa mánaðar eftir viðtal við hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, undir fyrirsögninni: Stendur ekki í vegi laga um hálendisþjóðgarð. Þetta var sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að hinn 18. febrúar hafði birst viðtal við varaformann Sjálfstæðisflokksins, hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, undir yfirskriftinni: Umræða um hálendisþjóðgarð þarfnast lengri tíma. Nú bregður svo við að í gær var hæstv. samgönguráðherra, formaður Framsóknarflokksins, í viðtali í Víglínunni á Stöð 2 sem kallaði fram í frásögn um það mál: Útilokað að hálendisþjóðgarður verði samþykktur í núverandi mynd. Þar fór hæstv. ráðherrann yfir þau sjónarmið sem hann taldi vanta upp á í þeim efnum. Þetta var sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að þegar mælt var fyrir málinu hér í desember síðastliðnum sagði varaformaður Framsóknarflokksins að hún, hæstv. ráðherra, væri bjartsýn á sátt um hálendisþjóðgarð. Það er ámælisvert ef störf heillar þingmannanefndar eru lögð undir mál sem enginn vilji er til að klára. Það er búið að fjalla um málið á 14 nefndarfundum umhverfis- og samgöngunefndar og er gestakomum hvergi nærri lokið.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hæstv. umhverfisráðherra stuðning ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna til að klára málið eins og það var lagt fram? Og ef ekki, hvað er það sem er verið að reyna að semja um á milli stjórnarflokkanna? (Forseti hringir.) Mér þykir nauðsynlegt núna þegar fimm nefndarfundir eru eftir samkvæmt starfsáætlun þingsins eins og hún liggur fyrir, (Forseti hringir.) með þeim aukafundi sem nú hefur verið tilkynntur, að þetta liggi fyrir og nefndin geti varið tíma sínum (Forseti hringir.) í aðra hluti en þetta frumvarp ef enginn vilji er til að samþykkja það.