151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

hálendisþjóðgarður.

[13:33]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og fyrir áhugann á þessu máli sem ég veit að hv. þingmaður, sem er formaður umhverfis- og samgöngunefndar, hefur aðstoðað meiri hlutann við að passa upp á að komi á dagskrá, þó svo að sá sem hér stendur hafi augljóslega ekki dagskrárvaldið á fundum umhverfis- og samgöngunefndar. Því er kannski erfitt fyrir þann sem hér stendur að svara því hvenær þetta mál er á dagskrá nefndarinnar og hvenær ekki, hversu marga fundartíma það hefur fengið og þar fram eftir götunum. En þetta er augljóslega gríðarlega stórt mál, það fer ekki á milli mála. Það eru margar skoðanir og mismunandi á þessu máli. Ég er bjartsýnn á að meiri hluti nefndarinnar komist að niðurstöðu um þetta mál með einum eða öðrum hætti en ætla ekki að úttala mig meira um það hér með hvaða hætti það gæti orðið. Ég veit að við munum eiga hv. þingmann að þegar kemur að því að greiða þessu máli götu í nefndinni, líkt og hefur verið, og hef svo sem ekki mikið meira um þetta að segja.