hálendisþjóðgarður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin þó að mér þætti þau þunn. Hæstv. ráðherra þarf ekkert að aðstoða formann umhverfis- og samgöngunefndar við að halda utan um tölfræðina um gestakomur. Það breytir því ekki að í viðtalinu í Víglínunni í gær komu fram vangaveltur hæstv. samgönguráðherra, sem er formaður eins þriggja stjórnarflokkanna, um að mögulega verði farin sú leið að stækka Vatnajökulsþjóðgarð í staðinn, þá væntanlega í staðinn fyrir að nálgast málið eins og það liggur fyrir núna. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. umhverfisráðherra hvort það sé einhvers lags málamiðlun sem verið sé að ræða milli ríkisstjórnarflokkanna núna. Um leið langar mig til að spyrja hæstv. umhverfisráðherra um atriði sem kom mér nokkuð á óvart í viðtalinu við hæstv. samgönguráðherra og formann Framsóknarflokksins í gær þar sem hann sagði Framsóknarflokkinn hafa sett fyrirvara við málið inn í stjórnarsáttmálann. Kannast hæstv. umhverfisráðherra við þá fyrirvara?