hálendisþjóðgarður.
Hæstv. forseti. Líkt og hv. þingmaður veit voru allmargir fyrirvarar settir við málið af hálfu Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ég er ekki óvanur því í málum sem ég legg fram á þingi að það séu fyrirvarar hjá samstarfsflokkunum og kannski ekkert óeðlilegt við það. Okkur hefur hingað til tekist ágætlega að vinna úr slíkum fyrirvörum í þessum stjórnarmeirihluta og þess vegna bind ég vonir við að við getum með einhverjum hætti unnið úr þessu máli líka. Ég ætla ekki að tjá mig um það á þessari stundu hvaða leiðir það eru nákvæmlega, hvort það er stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs eða annað sem er vitnað til hér úr viðtali. En þetta eru talsvert margir fyrirvarar, stórt mál og það er í vinnslu.
Varðandi það sem snýr að stjórnarsáttmálanum talar stjórnarsáttmálinn fyrir sig og ekki meira um það að segja.