njósnir Bandaríkjamanna og Dana.
Forseti. Síðustu daga hafa verið fluttar fregnir af því að Bandaríkjamenn hafi, m.a. í gegnum Þjóðaröryggisstofnun sína, njósnað um háttsetta einstaklinga í nokkrum löndum; Þýskalandi, Svíþjóð, Frakklandi og Noregi. Til þessa var fengin aðstoð leyniþjónustu danska hersins og fjarskiptakaplar notaðir til að hlera símtöl og fylgjast með rafrænum samskiptum ef eitthvað er að marka fréttir. Áður hafa borist fregnir af njósnum Bandaríkjanna í Danmörku sjálfri. Þetta er háttsemi sem Bandaríkin hafa gagnrýnt mjög þegar kemur að pólitískum andstæðingum þeirra í öðrum löndum og við hljótum að gagnrýna, sama hver á í hlut. Mikið hefur verið rætt um hættuna á því að fjarskiptakerfi séu nýtt til njósna. Fregnir síðustu daga sýna að oftast þarf ekki að leita langt yfir skammt. Það geta alveg eins verið helstu vinir okkar og bandamenn sem eiga í hlut þegar að þeim málum kemur.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann hafi áhyggjur af þessum fregnum sem berast okkur, hvort hann hafi kynnt sér málið og geti þá sagt okkur aðeins meira um það sem býr þarna að baki, jafnvel hvort hæstv. ráðherra telji þörf á sérstökum viðbrögðum vegna málsins og kannski ekki síst: Telur hæstv. ráðherra að þetta sé eitthvað sem við þyrftum að hafa áhyggjur af að gæti komið upp hér á landi? Eru Bandaríkjamenn líka að njósna um Íslendinga, sem væri þá ekki í fyrsta skipti í sögunni, eða er þetta eitthvað sem við þurfum bara að fylgjast sérstaklega með gagnvart öðrum löndum?