151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

njósnir Bandaríkjamanna og Dana.

[13:39]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Málið er grafalvarlegt og grefur augljóslega undan trausti í samskiptum þessara miklu vina- og bandalagsþjóða. Utanríkisráðuneytið hefur krafist skýringa frá Dönum á þessu og komið áhyggjum okkar og vonbrigðum skýrt á framfæri. Utanríkisráðuneytið hefur enn fremur krafist þess að Danir upplýsi undanbragðalaust hvort þessar njósnir hafi beinst að íslenskum hagsmunum, þar með talið íslenskum stjórnmálamönnum, embættismönnum, stofnunum, fyrirtækjum eða einstaklingum hér á landi. Í þessu skyni hafa embættismenn utanríkisráðuneytisins átt samtöl við staðgengil sendiherra Danmerkur hér á landi sem og við fulltrúa danska varnarmálaráðuneytisins þar sem áhyggjum okkar og vonbrigðum með þetta mál hefur verið komið skýrt á framfæri. Í sömu samtölum höfum við krafist upplýsinga um það hvort sú starfsemi sem þarna er lýst hafi snúist gegn íslenskum hagsmunum, íslenskum stjórnmálamönnum, stofnunum eða fyrirtækjum.

Eins og við þekkjum komust þessi mál síðast í hámæli síðsumars þegar upplýst var um að bandarísk stjórnvöld hefðu m.a. mögulega nýtt náið samstarf ríkjanna til njósna um danska ríkisborgara. Einnig komu fram frekari ásakanir um að bandarísk stjórnvöld hafi njósnað um lykilráðuneyti og einkafyrirtæki í Danmörku á grundvelli náins samstarfs ríkjanna. Það olli eðlilega áhyggjum í Danmörku en einnig hérlendis og víðar meðal bandamanna og samstarfsþjóða Danmerkur. Við komum þeim áhyggjum sterkt á framfæri við ráðamenn í Danmörku á þeim tíma. Nú virðist sem þær áhyggjur hafi verið á rökum reistar og að samstarf dönsku leyniþjónustunnar og Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna hafi rist dýpra en áður var talið og m.a. falið í sér njósnir um háttsetta stjórnmálamenn, embættismenn, stofnanir og fyrirtæki í nánum bandalagsríkjum Danmerkur.

Traust og trúnaður eru lykilþættir í samskiptum vinaríkja. Mál á borð við þetta geta grafið undan slíku trausti. Það er nokkuð sem við þurfum ekki á að halda á tímum fjölþátta ógna. Því miður eru ríki sem hafa beinlínis hag af því að grafa undan trausti og samstöðu vina- og bandalagsríkja á Vesturlöndum. Við höfum krafist þess að spilin verði lögð á borðið. Það er grundvallaratriði ef okkur á að auðnast að takast á við þessa áskorun (Forseti hringir.) og byggja upp nauðsynlegt samstarf til framtíðar.

Ég fer síðan í aðrar spurningar í seinna svari mínu.