151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

njósnir Bandaríkjamanna og Dana.

[13:42]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Gott að heyra hjá hæstv. ráðherra að málið sé metið mjög alvarlegt og strax þegar fregnir bárust í fyrra hafi verið farið að kanna það og svo enn frekar aftur núna og ég fagna því.

Ég heyrði ekki betur í máli hæstv. ráðherra, gæti verið misskilningur hjá mér, en að þau samtöl og þær áhyggjur sem á framfæri hafi verið komið hafi fyrst og fremst beinst gegn Danmörku. Hæstv. ráðherra nefndi sendiherra Danmerkur og tilhlýðilegar stofnanir og ráðamenn í Danmörku. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort sömu áhyggjum hafi verið komið á sama hátt á framfæri við Bandaríkjamenn og hvort þetta sé mál sem þurfi að ræða í þeim stofnunum þar sem við erum í samstarfi, eins og á leiðtogafundi NATO.