151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[13:56]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ef þessi fjármálaáætlun verður framkvæmd segi ég bara: Guð hjálpi þeim verst settu í almannatryggingakerfinu á Íslandi. Ríkisstjórnin ætlar ekki að hjálpa þeim. Það á að vera nákvæmlega það sama og alltaf hefur verið, kjaragliðnun og aftur kjaragliðnun, eingöngu hækkun samkvæmt vísitölu, menn mega þakka fyrir það. Það sem er kannski furðulegast í þessu dæmi er að aldraðir, sem hafa ekki fengið krónu í Covid-málinu, ekki neina aðstoð, eru ekki einu sinni til í fjáraukalögum, þeir eru skildir algerlega eftir. Ég segi bara: Ef þessi fjármálaáætlun á að standast verða þessir flokkar að ná völdum og þá ætla ég að biðja guð að hjálpa okkur. Ég vona svo heitt og innilega að þessi ríkisstjórn geti ekki farið eftir þessari fjármálaáætlun.