fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Nýfrjálshyggjan er dauð, hún er búin. Þessi ríkisstjórn ætlar að vera ein sú síðasta í okkar nágrannalöndum til að átta sig á því. Það er sorglegt. Íhaldssemin er áþreifanleg í þessari fjármálaáætlun sem og skilningsleysi á framtíðinni. Það er enginn skilningur á því hvernig framtíðin lítur út og hverjar þarfir framtíðarinnar verða. Forsætisráðherra skýlir sér á bak við ábyrgð, felur stefnu- og aðgerðaleysið og algjöran skort á skilningi á framtíðinni á bak við ábyrgð, en stöðnun er ekki merki um það að sýna ábyrgð. Það er algjört ábyrgðarleysi og ég hef miklar áhyggjur af því. Ég hef miklar áhyggjur af því að þessi ríkisstjórn muni halda áfram eftir næstu kosningar. Ég hef miklar áhyggjur af því hvað það þýðir fyrir samfélag okkar og getu okkar til að fara í einhverja endurreisn eftir Covid.