151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[14:00]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Verðbólga er meiri en verið hefur í áraraðir. Vextir fara hækkandi, atvinnuleysi er mikið. Innviðauppbygging var ekki sú sem áætlað var. Allt eru þetta mjög skýr merki um það hvernig haldið hefur verið á spöðunum að undanförnu. Í þessu kosningaplaggi ríkisstjórnarinnar sést — og vel að merkja, ríkissjóður var orðinn ósjálfbær fyrir Covid, það er ekki hægt að skýla sér á bak við Covid, hann átti ekki fyrir útgjöldum — að ríkisstjórnin ætlar að skila okkur fjármálaáætlun með 50 milljarða halla í lok áætlunarinnar og það á að redda þessu með afkomubætandi aðgerðum. Það þýðir niðurskurð. Ég ætla rétt að vona að ekki verði farið í að skera niður í heilbrigðiskerfinu og þá þýðir þetta 50 milljarða skattahækkun beint á almenning og fyrirtækin í landinu í stað þess að fara leið verðmætasköpunar og gengisstöðugleika sem við í Viðreisn höfum talað fyrir, gengisstöðugleika til frambúðar, sem skiptir heimilin miklu máli hvað varðar húsnæðiskostnað, leiðir til lægra verðs matarkörfu og lægri leigukostnaðar fyrir utan það að laða að erlent fjármagn, ekki síst fyrir fyrirtækin og nýsköpunarfyrirtækin sem við þurfum svo á að halda.