aukið samstarf Grænlands og Íslands.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Þetta er gleðistund, að við séum að greiða atkvæði um þessa tillögu. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. utanríkismálanefnd fyrir gott starf þegar kemur að þessu. Ég ætla ekkert að endurtaka það sem hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson nefndi hér. Þetta er byggt á skýrslu sem var skrifuð undir forystu fyrrverandi utanríkisráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, og í hópnum voru sömuleiðis Unnur Brá Konráðsdóttir og Óttar Guðlaugsson. Þetta er mjög góð skýrsla og það er grunnurinn í öllu okkar samstarfi við vini okkar Grænlendinga að við vinnum þessa hluti saman. Það er mikill stuðningur, bæði hjá Grænlendingum og Íslendingum, við aukið samstarf okkar á milli og okkur ber skylda til að vinna það eins vel og mögulegt er. Ef við gerum það þá verður það okkur öllum til heilla. En það er ánægjulegt hvernig þetta mál hefur verið unnið og ég vil nota tækifærið og þakka öllum hlutaðeigandi fyrir það sem þeir hafa lagt fram. Ég hlakka til að sjá niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.