151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

breyting á þingsályktun nr. 40/150 um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020--2024.

802. mál
[14:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að við náum að uppfæra samgönguáætlunina í takt við það sem nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar hljóðar upp á þegar samgönguáætlun var samþykkt hér fyrir ári, eða síðastliðið vor, og var svo fjármagnað að fullu í fjármálaáætlun. Þessi uppfærsla er samkvæmt því sem sýnir að þessi ríkisstjórn vill halda áfram innviðauppbyggingu og trúir og treystir á þær og ég fagna því þeirri breytingu sem mun gagnast vel um allt land.