151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[14:53]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjáraukalaga. Það sem er merkilegast í því plaggi er algjör þögn og ekki króna sett í lið 28 Málefni aldraðra, ekki króna. Aldraðir hafa ekkert fengið, ekki krónu í öllu Covid og eiga í mesta lagi að fá vísitöluhækkanir næstu fjögur árin ef ríkisstjórnin verður við völd. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: 2013 sagði hann að hann ætlaði að afturkalla kjaragliðnun frá 2009, hvernig hefur það gengið? Hann talaði líka um það þá í bréfi að afnema tekjutengingar. Er það hér inni eða er það loforð fyrir næstu ríkisstjórn ef hann kemst áfram?