151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[14:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég saknaði þess að heyra ekki frá hv. þingmanni nákvæmlega hvað það var í heimsfaraldrinum sem hefði snert aldraða sérstaklega þannig að það hafi bitnað á þeim með þeim hætti að kjör þeirra hafi rýrnað svo að bæta þyrfti það með opinberum framlögum. En hvernig hefur gengið að efna það sem sagt var á sínum tíma fyrir kosningar 2013? Það hefur gengið vel. Við létum afturkalla allar skerðingar á grunnlífeyri. Það var gríðarlega mikilvægt. Smátt og smátt, skref fyrir skref, tókum við síðan allar skerðingar vinstri stjórnarinnar frá 2009–2013 til baka. Ekki bara það heldur notuðum við kjörtímabilið til að gera grundvallarbreytingu á kerfinu sem er auðvelt að fletta upp að hefur skilað bættum, stórbættum, kaupmætti bóta almannatrygginga. Við höfum búið til 300.000 kr. frítekjumark í fjármagnstekjuskatti sem kemur þessum hópi sérstaklega vel. (Forseti hringir.) Við létum afnema eignarskattinn sem bitnaði illa á tekjulágu fólki í eigin húsnæði þannig að lið fyrir lið höfum við klárað það sem um var rætt.