fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svörin en ég get ekki annað en verið innilega ósammála honum. Þetta bara stenst ekki skoðun. Kjaragliðnunin er að nálgast 50%, sem þetta fólk á inni. Og hann spyr. Hvað í Covid hefur orðið til þess að skilja fólk eftir? Jú, það var svo mikil búsetuskerðing. Búsetuskerðingarfólkið í almannatryggingakerfinu fær 10% minna en lágmarkslífeyri og skerðist krónu á móti krónu. Þetta fólk sveltur, það fær ekki krónu. Þetta fólk var innilokað, veikt, það fær ekki krónu. Gamla fólkið sem var lokað inni nærri því í heilt ár og þurfti að panta mat og annað á lágmarkslífeyri, þetta fólk hefur ekki fengið krónu. Og ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum er þetta fólk skilið eftir og fær ekki krónu? Þetta er fólkið sem byggði landið upp og ef fjármunir hefðu verið til einhvers staðar hefðu verið til fjármunir fyrir þetta fólk og ég veit um fólk sem hreinlega sveltur bara vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki séð sóma sinn í því að hjálpa þessu fólki.