151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[14:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég var að kalla eftir var dæmi um að heimsfaraldurinn hefði bitnað sérstaklega á ráðstöfunartekjum þeirra sem verið er að ræða um hér, sem eru lífeyrisþegar. Hv. þingmaður kom ekki með eitt einasta dæmi um að heimsfaraldurinn, kórónuveirufaraldurinn, hefði bitnað á ráðstöfunartekjum. Hann heldur hins vegar áfram með gagnrýni á kerfið sjálft. Gott og vel, það er efni í almenna umræðu um almannatryggingar. En þar er engum blöðum um það að fletta að við höfum verið að bæta í. Við höfum nýtt hagvaxtarskeið undanfarinna ára til að standa betur með þeim sem treysta á bætur almannatrygginga. Það er enginn vafi á því að kaupmáttur þeirra bóta sem þar eru greiddar út hefur sögulega aldrei verið hærri en einmitt nú. Þetta skiptir máli.