151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[14:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er erfitt að sjá að upp hafi komið einhver þau óvæntu, ófyrirséðu atvik varðandi stöðuna á sjúkrahúsunum sem kalli á inngrip á miðju fjárlagaári með fjáraukalagafrumvarpi. Við höfum hins vegar verið með fjáraukalög til að bregðast við heimsfaraldri. Ég tek undir með hv. þingmanni að ég get ekki annað en lýst ákveðnum áhyggjum, og í mörgum tilvikum verulegum áhyggjum, af því að okkur gangi ekki að stytta biðlista þannig að viðunandi sé og jafnvel þannig að við þurfum að senda til annarra landa fólk sem ætti með réttu að fá aðgerðir á Íslandi. Ég held að það mál þurfi dýpri skoðun en svo að við tökum enga aðra ákvörðun en þá að setja marga nýja milljarða í málið. Við þurfum að spyrja okkur: Hvernig hafa milljarðarnir sem við höfum síðast sett í það dugað til að vinna á sama vandanum? Nýjasta skýrslan í því efni flutti ekki góða sögu. Hún sagði: Þið hafið sett fleiri krónur í málaflokkinn, þið hafið ráðið fleira fólk en þið fáið ekki meiri framleiðni.