151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:00]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Við þekkjum vel að það er möguleiki að fara í fleiri skurðaðgerðir, t.d. á sjúkrahúsinu á Akranesi og á Akureyri, þegar kemur að liðskiptum. Það mætti hugsanlega fela Landspítalanum að halda utan um samninga við aðrar stofnanir um að taka niður þennan lista. Mér fannst sláandi að lesa minnisblað frá Landspítalanum til heilbrigðisráðuneytisins sem var tekið saman nú í febrúar. Það gefur sannarlega vísbendingu um að taka þurfi á þessum málum. En ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það hafi aldrei komið til tals við ríkisstjórnarborðið að lengja atvinnuleysistímabilið. Nú eru 6.500 manns sem hafa verið atvinnulaus lengur en í 12 mánuði, jafnvel þó að atvinnuleysi sé að fara niður. Það eru enn 20.000 manns atvinnulaus á Íslandi. Það er gert ráð fyrir að (Forseti hringir.) 13.000 manns verði atvinnulaus hér árið 2023. Telur hæstv. ráðherra ekki að það þurfi að bregðast við langtímaatvinnuleysi, þetta fólk mun ekki allt fá vinnu og það er í efnahagslegum vanda?