fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég deili áhyggjum af atvinnuleysinu en eins og hv. þingmaður benti á er atvinnuleysi að minnka um þessar mundir. Tvær nýlegar spár sem við sáum hafa sagt okkur annars vegar að atvinnustigið verði orðið sambærilegt og fyrir þennan heimsfaraldur strax á næsta ári og önnur spá að það gerist á árinu 2023. Hér erum við því að tala um 12–24 mánaða tímabil u.þ.b. þar sem við náum til baka atvinnustiginu frá því fyrir Covid-faraldurinn. Það væri merkilegt ef það myndi gerast strax á næsta ári en það myndi byggja á því kraftmikla viðnámi sem við erum m.a. að sýna með ríkisfjármálunum. Félagsmálaráðherra hefur verið að gera breytingar á vinnumarkaðsúrræðunum sem eru hluti af þessu máli og mér finnst þær hafa verið skynsamlegar og yfirvegaðar og ég styð það heils hugar. Ég tel að þær muni skipta máli og dugi sem viðbragð við stöðunni eins og hún er í dag.