fjáraukalög 2021.
Forseti. Fjármálaráðherra talar hér um að lágmarka tjón en framan af faraldrinum og alveg fram á þetta ár fór atvinnuleysi hækkandi þrátt fyrir markmið stjórnvalda um að bregðast við jafnóðum. Fjármálaráðherra segir einnig að nú sé komin sú reynsla af aðgerðum stjórnvalda að hægt sé að fara að beina fjármagni til réttra aðila, núna við lok faraldursins. Það er það sem við kölluðum eftir frá upphafi, að betri grein yrði gerð fyrir því hver árangur af notkun fjárheimilda í aðgerðir stjórnvalda yrði. Við því komu aldrei svör. Nú er samkvæmt reynslu undanfarins árs komið fram hvernig gott er að beita fjármunum í þessu ástandi. Það sést mjög greinilega á þessu fjáraukalagafrumvarpi að þar er liðurinn Vinnumarkaður og atvinnuleysi 10 milljarðar. Atvinnuleysi fór sífellt hækkandi og þó að bregðast ætti við jafnóðum var ekkert gert fyrr en núna, er það ekki aðeins of seint?