151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég tel að það sé ekki of seint. Ég tel að það sé hárrétt af okkur að stíga ölduna aðeins eftir því hvernig skipið veltur og það höfum við gert. Við höfum byggt á bestu fáanlegu upplýsingum. Við höfum verið tilbúin til að endurskoða aðgerðir. Og hverju hefur þetta svo skilað? Skoðum það t.d. núna á fyrsta ársfjórðungi að einkaneyslan á Íslandi heldur borið saman við fyrsta ársfjórðung á árinu á undan. Þessu er mjög ólíkt farið í öðrum löndum. Við sjáum dæmi um það í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri annarra landa, m.a. í Þýskalandi og Noregi, að það vantar kannski allt að 10% upp á einkaneysluna borið saman við fyrsta ársfjórðung í fyrra á meðan við erum bara að halda og gott betur en það. Ég tel að þetta sé til vitnis um að aðgerðirnar hafa virkað og það er ekkert að því að koma nú með aðgerðir sem eyða óvissu um framtíðina og gera aðlaganir, t.d. á viðspyrnustyrkjunum sem taka tillit til þess hvernig úrræðið hefur nýst.