fjáraukalög 2021.
Forseti. Núna talar hæstv. fjármálaráðherra um að það þurfi að eyða óvissu. Þetta var það sem við báðum um hér fyrir ári, að það væri hlutverk stjórnvalda að eyða óvissu. Þá frestuðu stjórnvöld því að leggja fram fjármálaáætlun um stefnu sína um það hvernig glíma ætti við kórónuveirufaraldurinn og ástandið eftir hann. Nú erum við með fjármálaáætlun þar sem engin stefna er sett fram um það hvernig komast eigi út úr faraldrinum, það segir bara að grípa eigi til einhverra ráðstafana einhvern tímann 2023 og seinna. Við vitum ekki alveg hvað á að gera, en það þarf að gera það. Við vonum bara hið besta. Það er stefna stjórnvalda þegar allt kemur til alls og nú á að eyða einhverri óvissu þegar faraldurinn er að klárast og óvissan er að hverfa hvort eð er. Ég átta mig ekki alveg á þessu fyrirkomulagi nema að það sé að uppfyllast sem við höfum verið að tala um frá upphafi, að þetta sé geðþóttastefna. Það á að bregðast við jafnóðum sem var bara viðurkennt, það var það sem var gert en alls ekki á nákvæman hátt. Það er ekki fyrr en núna að (Forseti hringir.) hægt er að leggja þetta fram á nákvæmari hátt af því að óvissan er hvort eð er horfin af því að faraldurinn er að hverfa.