151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þingmaður tala eins og hann hefði bara getað staðið hér fyrir ári og sagt: Heyrðu, þetta verður svona. Það kemur bóluefni fyrir lok árs. Við munum fara svona hátt í smitum og svo mun þetta ganga svona hér og annars staðar mun þetta ganga hinsegin. Auðvitað voru hlutirnir aldrei með þessum hætti. Við höfum verið í stanslausri óvissu. Við höfum þurft að gefa fyrirtækjum og heimilum eins mikla vissu um framtíðina og mögulegt er á hverjum tíma. En við gátum ekki svarað fyrir það hvernig úr myndi rætast. Það var aldrei möguleiki. Það hefði verið heimskulegt að taka ákvarðanir fyrir ári og segja: Við munum ekki endurskoða afstöðu okkar vegna þess að við vitum hvernig þetta allt saman fer. Við höfum farið aðra leið, við höfum gert það sem hægt var og skynsamlegt var á grundvelli bestu upplýsinga hverju sinni og svo komum við og aðlögum og breytum og metum, lærum af reynslunni o.s.frv. og það er ekkert til að skammast sín fyrir. Já, við komum aftur núna til þess að eyða óvissu, t.d. um viðspyrnustyrki inn í framtíðina, og bregðumst við á grundvelli reynslunnar aftur í tímann. (Forseti hringir.) Þetta er eðlilegt að gera. Það var enginn sem gat spáð fyrir um það nákvæmlega hvernig myndi spilast úr þessu. En við sjáum það núna eftir á að okkur hefur gengið betur en næstum öllum öðrum.