fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir ræðuna. Ég vildi koma aðeins inn á halla ríkissjóðs sem heldur áfram að aukast og afkoman er neikvæð um 328 milljarða kr., eða það stefnir í að svo verði á þessu ári eftir að þær aðgerðir koma til framkvæmda sem hér eru til umræðu. Það eru miklar áskoranir fram undan. Hvernig sér hæstv. fjármálaráðherra fyrir sér að þessum halla verði mætt, að við náum niður þessum halla? Nú hefur oft verið vísað í það að ferðaþjónustan sé lykilatriði í þessum efnum og það eru spár um u.þ.b. 2 milljónir ferðamanna á næsta ári og því þar næsta. En hins vegar hefur ferðaþjónustan sagt að þessar spár séu allt of bjartsýnar og sé mjög hæpið að þetta gangi eftir. Þetta kom fram á fundi fjárlaganefndar með forsvarsmönnum ferðaþjónustunnar. Ef hæstv. ráðherra gæti komið örstutt inn á það hvernig hann sér fyrir sér að ná niður þessum halla á komandi árum. Það er gríðarlega mikilvægt vegna þess að halli á ríkissjóði hefur slæm áhrif víða í efnahagslífinu, eins og við þekkjum.