fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að halli ríkissjóðs er áhyggjuefni. En ég tel hins vegar að það sé rétt að beita ríkisfjármálunum af þetta miklum krafti við þær aðstæður sem nú eru uppi. Í þeirri fjármálaáætlun sem við vorum að samþykkja hér fyrr í dag er vörðuð leið í átt að jafnvægi ríkisfjármálanna að nýju þar sem skuldasöfnuninni verður hætt. Það er ekki stefna sem gengur út á það að hallinn verði sá sem þar er gert ráð fyrir á ári 5, heldur hljótum við að stefna að því að gera betur en undirliggjandi hagspár gera okkur kleift að leggja til grundvallar í slíkri áætlanagerð. Þannig að markmiðið eins og ég horfi á það er að örva enn meira hagvöxt en hagspár gera ráð fyrir í dag þannig að þetta muni gerast hraðar og það mun styðja við það verkefni að loka fjárlagagatinu. En við þurfum að gefa okkur nokkur ár til þess. Þetta tímabil munum við brúa með lántökum og sölu eigna og það skiptir gríðarlega miklu máli að við lágmörkum fjármagnskostnað með trúverðugleika að vopni, trúverðugleika um það að við getum unnið okkur til baka (Forseti hringir.) út úr miklum hallarekstri. Varðandi bjartsýni og ekki bjartsýni, ég segi bara um ferðaþjónustuna að við fórum alltaf fram úr öllum spám (Forseti hringir.) nánast í heilan áratug þegar ferðaþjónustan var að vaxa í kringum 20% á hverju ári. Ég hef mjög mikla trú á vaxtargetu þess geira.