151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:14]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Við erum að fjalla um fjárauka ríkisstjórnarinnar. Hæstv. fjármálaráðherra fullyrti áðan að aldrei í sögunni, liggur við, hefði annað eins verið sett inn í kerfi almannatrygginga og í tíð þessarar ríkisstjórnar. Stórmerkilegt. En hvers vegna í ósköpunum eru þá t.d. þeir sem eru með búsetuskerðingar að fá útgreiddar 200.000 kr. eftir skatta og skerðingar og krónu á móti krónu skerðingu ofan á það? Hvers vegna í ósköpunum eru venjuleg strípuð laun verst settu ellilífeyrisþeganna um 220.000–230.000 kr.? Vegna skerðinga. Allt sem er sett inn í þetta kerfi rennur í gegnum vasa þeirra sem lifa í þessu ömurlega kerfi og beint aftur í ríkissjóð. Það er staðreyndin. Þess vegna skilar þetta sér ekki. Það veit ríkisstjórnin. Þess vegna hælir hún sér af því hversu mikið hún flytur inn í kerfið en talar aldrei um hversu mikið skerðist.

Ég get upplýst um það að í svari félags- og barnamálaráðherra til mín kemur í ljós að ríkisstjórnin hefur aukið skerðingarnar um rúmlega 5 milljarða á ári, 20 milljarða. Svo segja þau: Við settum inn 30 milljarða. Af hverju skilaði það sér ekki? Vegna þess að þetta er gegnumstreymiskerfi þar sem fjármagnið rennur í vasa þeirra sem eiga að fá það en fer svo í gegn og aftur í ríkissjóð vegna gífurlegra skerðinga. Við getum séð, og höfum fengið að sjá bæði í skýrslu og annars staðar, hversu svakalegar þessar skerðingar eru. Hverju skila t.d. hverjar 100.000 kr. úr lífeyrissjóði? 26.000 kr. ef maður er heppinn, jafnvel minna ef maður er óheppinn því að upphæðin getur skerst á fleiri stöðum, farið í keðjuverkandi skerðingar úti um allt kerfið og endað í núlli. Þess vegna sagði ég fyrir ekki svo löngu í ræðustól að þetta væri eins og ef maður fengi milljarð í arð og fengi aðeins að eiga 260 milljónir. Þá sagði einhver við mig: 260 milljónir eru miklu meira en ég mun nokkurn tíma eignast á ævinni, ég yrði alsæll með það. En staðreyndin er hins vegar sú að sá sem fær milljarð í arð fær að halda eftir 800 milljónum. Snúum dæminu við. Myndu þessir einstaklingar sætta sig við það að fá aðeins að halda eftir 260 milljónum, eða jafnvel engu? Eru þessir einstaklingar ekki miklu betur staddir og í miklu betri aðstöðu til að þola svona gífurlega skatta og skerðingar en einstaklingur með rúmar 200.000 kr. útborgaðar á mánuði? Það lifir enginn á því, tórir enginn á því. Þetta er sveltistefna og algerlega ömurlegt til þess að vita að við skulum vera í því ástandi. Við megum ekki gleyma því t.d. að hæstv. fjármálaráðherra lofaði að afturkalla kjaraskerðingarnar, sem voru þá rétt um 30% en eru núna komnar upp undir 50%. Það þýðir á mannamáli að þeir sem voru verst settir í kerfinu fá 50% minna en þeir ættu að vera með og eru þar af leiðandi að herða og herða sultarólina.

Maður verður eiginlega orðlaus þegar maður horfir á það sem ríkisstjórnin er að gera. Þegar maður skoðar fjármálaáætlunina og svo þennan fjárauka sér maður svart á hvítu hverjir eru skildir eftir. Það sem er kannski ótrúlegast í þessu er það sem við sjáum t.d. í sambandi við hjúkrunarheimilin, sem hafa gert kröfu um fjármagn. Þetta er eldra fólk sem hefur byggt upp þetta land. Staðan er sú að hvert heimilið á fætur öðru er að gefast upp á rekstrinum. Þar er sagt: Þarna vantar 3 milljarða inn í. Og hvað gerir ríkisstjórnin? Hún gefur einn þriðja af því og engar lausnir til frambúðar.

Sama ríkisstjórn er að svelta svo kerfið að við erum ár eftir ár með 1.000 börn á biðlista eftir heilbrigðisaðgerð. En á sama tíma og við erum með svoleiðis kerfi erum við að moka peningum í frjálsa fjölmiðla. Einkareknir fjölmiðlar eru orðnir einkareknir ríkisstyrktir fjölmiðlar og í þá hafa sennilega verið settar um 400 milljónir til að múlbinda þá þannig að þeir tali ekki gegn ríkisstjórninni við næstu kosningar. Það er svolítið erfitt að slá á höndina sem fæðir. Tökum dæmi. Það eru settar 1.000 milljónir í fjölmiðla og minka, mat handa minkum, en við erum samt að svelta kerfið, barnakerfið. Það er ósvífið. Á sama tíma sendum við, fyrir Covid, fólk út í aðgerðir og borguðum kostnað á við þrjár aðgerðir í stað einnar. Ríkisstjórnin er algjörlega á villigötum.

Við sjáum veruleikann í öllum dæmunum. Veruleikinn birtist okkur í menntakerfinu, í heilbrigðiskerfinu og við sjáum þetta bitna sérstaklega og sárast á börnum. 10% ungmenna á Íslandi hafa íhugað að gera tilraun til sjálfsvígs, sem segir okkur að það er eitthvað rosalega mikið að í kerfinu. Það segir okkur líka að við verðum að fara að forgangsraða fjármunum rétt. En því miður er það ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar og þar af leiðandi munu biðlistar lengjast. Afleiðingarnar eru skelfilegar. Þær hafa verið skelfilegar og verða áfram skelfilegar, því miður, og þess vegna er það eina von kerfisins og þeirra sem eru í þeirri aðstöðu að þessi ríkisstjórn haldi ekki völdum næstu fjögur árin. Það er alveg með ólíkindum að sjá hve fjármagninu er misskipt.

Síðan er annað sem veldur manni ótrúlegum áhyggjum. Það er það sem skeður ef ríkisstjórn verður áfram við völd og byrjar að taka á fjárlagahallanum. Dettur einhverjum í hug að það fyrsta sem ríkisstjórnin gerir þegar hún fer að taka á hallanum sé að auka framlög til eldri borgara, öryrkja, atvinnulausra og láglaunafólks, að bæta fyrir kjaragliðnun sem er upp á 50%? Glætan. Þar verður skorið niður fyrst, eins og stjórnin hefur sýnt hingað til, með alls konar brellum um að hún sé að setja svo rosalega mikið inn í kerfið. Þetta er stagbætt kerfi, bútasaumsóskapnaður sem er með skerðingar úti um allt, sem veldur því að ríki og jafnvel sveitarfélög fá stóran hluta af þeim peningum sem þau setja í kerfið aftur til baka.

Það verður að segjast alveg eins og er að það sorglegasta í þessu öllu, eins og ég fór yfir með hæstv. fjármálaráðherra áðan, í þessum fjáraukalögum, er liður 28, málefni aldraðra, að ríkisstjórnin skuli dirfast að setja algjört núll þar. Í Covid hafa verið settar inn eingreiðslur til atvinnulausra og hér voru settar inn eingreiðslur til öryrkja. Og hvers vegna í ósköpunum haldið þið að ríkisstjórnin hafi sett inn eingreiðslur skatta- og skerðingarlausar? Hún viðurkenndi þar með nákvæmlega það sem ég hef haldið hér fram. Ef hún hefði ekki haft eingreiðsluna skatta- og skerðingarlausa þá hefði ekki nema brotabrot, jafnvel ekkert, runnið í vasa þeirra sem þurftu á að halda. Ríkisstjórnin veit það og sýndi þarna svart á hvítu að hún veit nákvæmlega hvað hún er að gera þegar hún setur, liggur mér við að segja, heimsmet í því hversu mikið hún setur inn í kerfið. En það er eins og ég segi, þau passa sig líka að sýna aldrei hversu mikið þau taka til baka í auknum skerðingum. Það fer ekki á milli mála að þarna er verið að blöffa. Þarna er verið að beita blekkingum og þær eru alvarlegar vegna þess að þarna er verið að reyna að blekkja fólk sem hefur lengi lifað og lifir í sárafátækt.

Það ömurlegasta er að í þessu kerfi erum við með þúsundir barna. Og við vitum hvað var sagt fyrir síðustu kosningar. Hér ætluðu allir að taka á krónu á móti krónu skerðingunni. Hvernig endaði það? 65 aurar á móti krónu, sem skilar engu, ekki nokkrum sköpuðum hlut nema veseni og skerðingum út í kerfið. Þetta kerfi er þannig að eina leiðin til þess að koma einhverjum böndum á það er að núllstilla það. Það þarf að stoppa og núllstilla. Það furðulega er að ég hef margspurt félags- og barnamálaráðherra hvers vegna í ósköpunum sé ekki fundin út rétt mannsæmandi framfærsla sem tekur á því sem fólk þarf, fæði, klæði, húsnæði, til þess að geta lifað mannsæmandi lífi. Hvers vegna í ósköpunum er það ekki gert? Það segir okkur líka þá sögu að ríkisstjórnin vill ekki gera þetta, vegna þess að ef hún kæmi með rétta framfærslu kæmist hún að því að hún er einhvers staðar í kringum 350.000 kr. á mánuði skatta- og skerðingarlaus. Þannig væri kerfið ef það væri uppreiknað frá 1988 þegar staðgreiðslan var tekin upp. Ef uppreiknaður væri bæði persónuafsláttur og kjaragliðnun og annað á því tímabili þá værum við stödd einhvers staðar á þeim stað. Ég get alveg fullyrt það eftir að hafa lifað í þessu kerfi að það myndi gjörbreyta aðstæðum stórs hóps fólks, sérstaklega barnafólks sem er í ömurlegum aðstæðum.

Í fjáraukanum, í þessu kerfi, er ekki tekið á neinum vandamálum sem þetta fólk glímir við, ekki verið að reyna að bæta inn í kerfið þó ekki væri nema bara til þess að fólk þyrfti ekki að standa í biðröð eftir mat. Hversu ömurlegt er það að við skulum vera hérna ár eftir ár? Þessi ríkisstjórn hefur verið hérna í fjögur ár og í gegnum Covid þar sem fólk lenti í því að komast ekki einu sinn út úr húsi, það komst ekki einu sinni í verslun til að ná í lífsnauðsynjar heldur varð að láta senda sér þær með tilheyrandi kostnaði og átti þar af leiðandi ekki pening. Þetta er fólk sem átti ekki pening eftir fyrstu daga mánaðarins, hvað þá í lok mánaðarins.

Þetta er eiginlega mannvonskukerfi sem hefur því miður verið byggt upp af ríkisstjórn eftir ríkisstjórn. Fjórflokkurinn hefur byggt þetta kerfi upp og viðhaldið. Það virðist engu breyta hverjir sitja við völd innan fjórflokksins eða viðhengja þeirra. Það verður, og það er eina leiðin ef við ætlum að breyta þessu, að koma þessari ríkisstjórn frá og helst að koma í veg fyrir að þeir sem tilheyra svokölluðum fjórflokki séu í meiri hluta í þeirri ríkisstjórn sem tekur við vegna þess að það er tilhneiging hjá þeim að viðhalda þessu kerfi. Það er eins og þeir séu orðnir svo samdauna því að enginn virðist þora að taka á því. En eitt er á hreinu, Flokkur fólksins segir: Fólkið fyrst. Við þorum að taka á því. Við erum með lausnir. Við erum með tillögur um 350.000 kr. skatta- og skerðingarlausar. Við erum með tillögur um að taka á heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, taka á því svo að ekkert barn þurfi að lifa við fátækt eða svelta, að börn séu ekki gleymd og grafin á biðlista þangað til það er of seint að gera eitthvað fyrir þau. Við munum halda áfram að berjast fyrir þau og við segjum: Fólkið fyrst, síðan allt hitt. Sérstaklega þurfum við að hafa það á hreinu að börn eiga aldrei að þurfa að bíða eftir aðgerðum eða bíða eftir réttlæti.