151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef voðalega gaman af því að elta galla í lögum. Þegar ég sé eitthvað sem er gallað þá passa hlutir ekki í hausnum á mér og ég verð að laga þá. Það á einmitt við um lög um almannatryggingar sem hv. þingmaður er mjög duglegur að eltast við. Þar hefur komið fram það sem ég bað rannsókna- og upplýsingaskrifstofu þingsins um að gefa mér yfirlit yfir, hvernig verðlag hefur þróast síðan lög um almannatryggingar voru samþykkt 1997, hvernig launa- og verðlagsþróun hefur verið og hvernig lífeyrir almannatrygginga hefur þróast á sama tíma. Þegar maður ber það saman sést svart á hvítu að lífeyrir almannatrygginga hefur hækkað umfram verðbólgu. Flott, frábært. Það grunnatriði laga um almannatryggingar er uppfyllt, lífeyrir má a.m.k. ekki hækka minna en verðlag. Þótt það hafi ekki gerst einstök ár hefur lífeyrir almannatrygginga á heildina litið hækkað meira en verðlag. En þegar maður skoðar launaþróun er lífeyrir almannatrygginga 50% lægri. Eftir því sem stendur í lögum um almannatryggingar, eins og maður skilur textann þegar maður les hann, þá má lífeyrir almannatrygginga ekki hækka minna en verðlagsþróun, eða launaþróun ef hún er hærri en verðlagsþróun. Þarna gliðnar í sundur og núverandi ríkisstjórn er í þeirri stöðu eftir fjögur ár við völd að gliðnunin hefur verið 5,7% á þessu kjörtímabili. Það er að meðaltali eins árs launahækkun á launamarkaðnum þar sem laun hafa hækkað að meðaltali um rúmlega 6% á ári frá því fyrir aldamót. Ein launahækkun yfir þetta kjörtímabil (Forseti hringir.) hefur fallið brott fyrir þennan hóp og þetta er hópurinn sem getur ekki farið í kjarasamninga (Forseti hringir.) og beðið um hærri laun nema í kosningum.