151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þessar skerðingar — við megum heldur ekki gleyma því að eftir hrunárin var lífeyrir lækkaður um 10% og sú ríkisstjórn lofaði því að það fyrsta sem yrði gert þegar betur áraði væri að taka þær skerðingar til baka og leiðrétta. Það var svikið og það er líka hluti af pakkanum. Það virðist vera tilhneiging til þess, og ég óttast það mest, að þegar einhver í fjórflokknum kemst til valda og er með brambolt í ríkisstjórn þá fari hann í þann gír að viðhalda þessu kerfi. Það er sorglegt vegna þess að ég tel að ef við tækjum okkur til gætum við uppreiknað nákvæmlega rétta framfærslu, mannsæmandi framfærslu með húsnæði og öllu saman, og núllstillt kerfið. Við gætum t.d. byrjað á því að segja að við ætluðum ekki að taka allar skerðingar út vegna þess að við ætluðum ekki að fara að borga hálaunamönnum neitt. Við gætum byrjað á meðallaunum í landinu, byrjað að skerða þar. Í dag erum við að tala um u.þ.b. 800.000 kr. í meðallaun og ef það eru meðallaunin landinu þá hljótum við að setja spurningarmerki við það að einhverjir séu að reyna að tóra á rétt rúmum 200.000 kr. og að þessari ríkisstjórn hafi tekist það ótrúlega að taka ekki bara 10% af búsetuskerðingunum, lægra en lægsta lífeyri, heldur líka að hún skyldi hafa getað sett krónu á móti krónu skerðingu á þennan hóp aftur. Og það kostaði ríkisstjórnina miklu meira en ef hún hefði sleppt því. Hún borgaði fyrir að setja krónu á móti krónu skerðingar á til að klekkja á þeim sem verst hafa það í þjóðfélaginu. Það er stórfurðulegt og held ég bara rannsóknarefni. (BLG: Heyr, heyr.)