151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Frumvarp til fjáraukalaga 2021 kom snemma á þessu ári. Þá fór ríkisstjórnin að leggja fram fullt af tillögum um alls konar aðgerðir sem áttu að koma til móts við kórónuveirufaraldurinn, ákveðnar vinnumarkaðsaðgerðir sem litu mjög vel út og voru dálítið það sem verið var að kalla eftir, að ná fólki inn í virkni og í atvinnu. En við vorum nýbúin að samþykkja fjárlög og fjármálaáætlun og ég klóraði mér mikið í hausnum og velti fyrir mér hvar fjárheimildirnar fyrir öllum þessum nýju aðgerðum væru. Það er mjög skrýtið að klára fjárlög og fjármálaáætlun og svo bara örstuttu seinna leggja til fullt af nýjum aðgerðum til að laga hlutina í faraldrinum. Af hverju var þetta ekki bara hluti af fjárlagavinnunni eða fjármálaáætlunarvinnunni?

Þetta var mjög undarlegt þannig að ég spurðist fyrir um hvar fjárheimildirnar væru fyrir öllu því sem hér er. Svörin voru óformleg og á þá leið að það væru einhverjar fjárheimildir til fyrir þessu í varasjóðum og afgangur af fyrri aðgerðum sem heppnuðust ekki, t.d. brúarlán þar sem gert var ráð fyrir meiri fjárheimildum en nýttust síðan af því að sú aðgerð virkaði einfaldlega ekki. En þetta fer svo mikið á svig við það hvernig opinber fjármál eiga að virka þar sem hið opinbera á að koma til Alþingis, sem er löggjafinn sem er með fjárveitingavaldið, og útskýra aðgerðir sínar með tilliti til þess hversu mikið fjármagn þarf til að fara í aðgerðir stjórnvalda og hvaða áhrifa er vænst af þeim. Hvað býst ríkisstjórnin t.d. við að atvinnuleysi lækki mikið á áætlunartímanum með átakinu Hefjum störf? Okkur er sagt hvað það kostar en okkur er aldrei gefin áætlun um hvaða áhrif aðgerðirnar eiga að hafa. Það er grundvallaratriði til þess að við getum metið árangur af notkun á almannafé að stjórnvöld sinni þeirri skyldu sinni samkvæmt lögum um opinber fjármál að útskýra fyrir okkur hver áhrifin eiga að vera.

Hérna er einmitt verið að leggja til næstum því 10 milljarða í vinnumarkaðsúrræði og það eru 7.000 störf sem eiga að verða til við það. En sú fjárheimild, eftir því sem ég best skil, klárast í kringum kosningar. Hvað þá? Hver er varanleikinn af þessu? Vonandi er það jákvætt, að þau sem eru í hlutabótaleiðinni og á að endurráða fyrir í rauninni sama fjármagn, muni halda áfram í 100% vinnu. En það eru ekkert svo rosalega margir núorðið þegar allt kemur til alls.

Þetta fjáraukalagafrumvarp er einmitt dæmi um hvað áætlun ríkisstjórnarinnar um að bregðast við jafnóðum þýðir. Það þýðir að þau ætla að bregðast við eftir á, eftir að skaðinn er skeður, vissulega í minni skrefum, en að bíða í heilt ár og sjá hvað gerist svo og bregðast síðan við, alltaf eftir á. Það sem við bentum á í upphafi faraldursins er að við verðum að horfa á hver staðan er, hvernig við viljum breyta henni til hins betra á næstunni miðað við þær aðgerðir sem er farið í, hvaða áhrifa við væntum af þeim aðgerðum og svo náttúrlega vegum við og metum þremur mánuðum seinna, eða eitthvað því um líkt, hvort það tókst og hvað verður þá gert í staðinn ef það tókst ekki.

Í upphafi faraldursins var talað mjög skýrt. Allir komu og sögðu: Við búumst við því að þetta verði V-laga faraldur, að við förum hratt niður en hratt upp aftur mjög fljótt. Og við það miðuðust allar áætlanir ríkisstjórnarinnar, við skulum hafa það á hreinu, sem er gott og blessað út af fyrir sig. Það voru hins vegar viðvörunarraddir sem heyrðust hér og þar úti í hornum um að sviðsmyndin gæti orðið verri, að það kæmi einmitt ekki bóluefni fyrr en núna um áramótin, sem var rosalega fljótt meira að segja. Sóttvarnalæknir sagði til að byrja með að það tæki kannski tvö til fjögur ár, að því að mig minnir, þar til bóluefni kæmi. Það var samkvæmt gömlu aðferðunum við að búa til bóluefni. Ef það hefði verið staðan værum við t.d. ekki enn þá byrjuð að bólusetja.

Þetta sýnir okkur svart á hvítu hver vandinn er. Það var búist við V-laga sveiflu, hratt niður og hratt upp aftur og ekkert plan B. Hvað gerist og hver verða viðbrögð stjórnvalda ef faraldurinn verður svokallaður U-laga faraldur þar sem við förum hratt niður, verðum þar í smá tíma og förum síðan hratt upp aftur? Eða L-laga faraldur, eins og það er kallað, þar sem við förum hratt niður og höldumst bara þannig. Við virðumst vera að lenda í einhvers konar löngum U-faraldri. (Gripið fram í.) — J-faraldri, það er góð uppástunga frá hv. þm. Smára McCarthy. Mér líst vel á það — og þó, þetta er eiginlega öfugt J, það snýr öfugt, þetta þarf að vera teygt. Þetta tók ár og ef fylgst hefði verið með vísindaþróuninni í bóluefnum, í tilbúningi nýrra bóluefna, þá hefði verið hægt að giska á með þokkalega mikilli vissu að bóluefnin hefðu verið tilbúin í kringum áramót, sem þau síðan voru. Það var viðmiðið með nýju tegundirnar af bóluefni og í rauninni líka með þau bóluefni sem voru búin til með gömlu aðferðinum, sem á tímum svínaflensunnar tók níu mánuði, eitthvað svoleiðis, að útvega. Það var met á þeim tíma.

Það voru því margar forsendur fyrir því að geta byrjað að búast við bóluefni í janúar og það hefði átt að vera grunnsviðsmynd í öllum aðgerðum stjórnvalda, að miða við það. Við bentum á þetta strax í upphafi faraldursins. Það þýddi að fyrstu áætlanir stjórnvalda voru rangar. Þær gengu of skammt. Það sást síðan greinilega þegar stjórnarandstaðan lagði til breytingartillögur, sérstaklega í nýsköpunarstarfsemi þar sem ríkisstjórnin lagði til í fyrsta fjáraukanum 1,5 milljarða, að þau ætluðu að gera alveg rosalega vel við hana. Sú upphæð fór í slatta af verkefnum. Stjórnarandstaðan skoðaði málið aðeins betur og lagði til 9 milljarða. Ríkisstjórnin endurskoðaði afstöðu sína og tvöfaldaði framlag sitt til nýsköpunarmála, fór upp í 3 milljarða.

Skoðum aðeins hvað þessi munur þýðir. Ríkisstjórnin lagði til 3 milljarða í nýsköpunarstarf til þess einmitt að koma til móts við hækkandi atvinnuleysi. Þetta er aðgerðin sem maður vill fara í til þess að byggja undir nýjar atvinnustoðir og byggja upp atvinnu til framtíðar. Hinar aðgerðirnar voru mjög tímabundnar í þessum uppbyggingarverkefnum, sem sagt samgönguverkefni o.s.frv., tímabundin verkefni sem búa ekki til varanleg störf heldur tímabundin störf. Það er svo sem gott og blessað líka, en að búa til varanleg störf er það sem allt snerist um í þessum faraldri frá upphafi, þó ekki nema væri bara út af því að það er gott sjálfbærnilega séð, af því að við vorum með of fáar stórar stoðir í atvinnulífinu. Það væri því bæði góð Covid-aðgerð og almenn aðgerð að leggja til fjármagn í nýsköpun. Afleiðingin af því að samþykkja þessa 3 milljarða ríkisstjórnarinnar en ekki 9 milljarða stjórnarandstöðunnar sjást síðan greinilega í sumarúthlutunum Tækniþróunarsjóðs þar sem einungis 8% umsagna voru samþykkt. Það var ekki fjármagn fyrir meiru. Aðsóknin, hugmyndirnar alls staðar af landinu, var einfaldlega miklu meiri. Og þetta voru góðar umsóknir. Þetta voru ekki bara draslumsóknir, langt í frá. Gróf áætlun sýndi að 9 milljarðar hefðu skilað fullri fjármögnun á góðum verkefnum inn í Tækniþróunarsjóð og síðan á víðari vettvangi í öðrum nýsköpunargeirum. Stjórnarandstaðan kom með raunhæfa og rétta tillögu inn í kórónuveirufaraldurinn.

Hérna er fjármálaráðherra að monta sig af því að við stöndum okkur betur en öll önnur lönd í kringum okkur. Gott og blessað, ég skal alveg taka undir það, enda hefur stjórnarandstaðan sinnt þó nokkru aðhaldshlutverki í þessum faraldri til þess einmitt að fá hækkun á nýsköpunarstyrkjum úr 1,5 milljörðum í 3 milljarða, bara svo við nefnum það. Við lögðum líka fleira til í fyrstu fjárfestingaráætluninni. Við saman, Alþingi, náðum alla vega þeim árangri að vera betri en öll önnur lönd í kringum okkur. Þrátt fyrir það er stærsti skaðinn sem við sjáum af stefnu stjórnvalda og því sem við náðum ekki í gegn í stjórnarandstöðunni — af því að ríkisstjórnin trúði okkur einfaldlega ekki og var ekki tilbúin að skoða þær hugmyndir sem við lögðum fram, þrátt fyrir að við legðum þær fram með þeim fyrirvara að það væri betra að hafa meira svigrúm en þyrfti svo að nota. Mantran hjá ríkisstjórninni var að þau vildu takmarka sig við það fjármagn sem hægt væri að koma í notkun. En það er í fínu lagi að leggja til meira. Við getum alveg lagt til 40 milljarða fjárheimild ef það skyldi vera svigrúm til að nota hana. Síðan ef ekki eru notaðir 20 milljarðar er þeim bara skilað aftur, ekkert mál. Við notuðum eins mikið og við gátum, frábært. Niðurstaðan varð hins vegar sú að það var ekki allt svigrúmið notað, hvorki í þeim atvinnuhugmyndum sem komu frá sveitarfélögunum né í þeim nýsköpunartækifærum sem við vorum með, hvergi. Þar er munur á stöðunni núna, sem er vissulega betri en í nágrannalöndum, og tillögum stjórnarandstöðunnar, sem hefðu leitt til minna atvinnuleysis eftir því sem kórónuveirufaraldurinn þróaðist, minna atvinnuleysis núna, minni þörf á aðgerðum núna, af því að við værum einfaldlega á betri stað.

Það er rosalega erfitt að sýna fram á þetta. Ég er að reyna að segja þetta með eins skýrum hætti og með eins skýrum dæmum og ég get fundið af því að greiningarnar eru ekki til. Ríkisstjórnin var ekki með neinar greiningar. Við fáum samkvæmt þessu eftirágreiningar á því sem við leggjum fram. Við sjáum þetta t.d. í því hvernig úthlutunarhlutfall Tækniþróunarsjóðs var. Það er réttlæting til þess að geta sagt: Sjáið bara, við höfðum rétt fyrir okkur. En þó að við hefðum verið að leggja til of háa fjárheimild þarna sem hefði ekki öll verið notuð þá hefðum við vitað það. Við þurftum þá ekki að nota hana alla en hún nýttist eins vel og hægt var.

Ríkisstjórnin lagði hins vegar til fullt af mismunandi aðgerðum, eins og brúarlán o.s.frv., sem nýttust ekki allar. Það var ónákvæm notkun á almannafé sem við eyddum í rauninni tíma í að búa til og ekkert varð til úr. Það var fullt af svoleiðis fimleikum fram og til baka þar sem ekki var tekið tillit til þess hvernig fyrirtæki eiga t.d. aflandseignir, ekki hvernig mismunandi fyrirtæki hafa verið að greiða arð eða greiddu síðan arð seinna meira, ekki í rauninni beinir styrkir til þeirra sem voru atvinnulausir til að skapa sér eigin möguleika. Við Píratar vorum með hugmyndir um að hafa einfaldlega skilyrðislausar atvinnuleysisbætur þar sem tíminn væri notaður fyrir þá sem væru á atvinnuleysisbótum, sem þeir voru hvort sem er þegar að fá, til að sækja sér virkni eða atvinnu í einhvern tíma til þess að búa til eitthvað nýtt. Það væri þá bara nýsköpunarstyrkur til einstaklinga sem er fullkomlega eðlilegt í því ástandi sem var. Það hefði minnkað atvinnuleysi. Þótt það hefði ekki minnkað kostnaðinn hefði það búið til framleiðni og framtíðarmöguleika, sem er það sem við miðuðum við og var markmið okkar frá upphafi. Það raungerðist hins vegar ekki af því að við erum með ríkisstjórn sem kann ekki að sýna fram á árangur af verkum sínum og kann ekki að hlusta.