fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég vil koma inn á ræðu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar þar sem hann talaði um vinnuúrræði. Ég var að spá í þessi vinnuúrræði og það hvernig ríkisstjórnin hefur gjörsamlega klúðrað því máli. Fyrst var vinnuúrræði þar sem allir áttu að geta unnið og fengið 307.000 kr. atvinnuleysisbætur, bara komið og unnið. Síðan var farið að bæta í og allt í einu komið með tilboð upp á 470.000 kr. plús 11% lífeyrissjóð. En það furðulegasta við það fyrirbrigði var að þeim sem fundu sér vinnu og voru tilbúnir að fara inn í þetta kerfi var neitað um það. Það voru alls konar girðingar og meira að segja girt fyrir stúdenta. Það furðulegasta við að þeir skyldu girða fyrir stúdenta var að stúdentar sem hafa verið að vinna eru búnir að borga inn í þennan sjóð en fá ekkert út úr honum. Þeir fá ekki þann rétt sem þeir eru búnir að setja peningana í.
Ég spyr því hv. þingmann hvort hann hafi kortlagt hvort þessi vinnuúrræði séu ekki bara almennt klúður hjá ríkisstjórninni vegna þess að hún hugsaði ekki málið til enda. Hún byrjar á einum enda og rýkur í annan. Það er merkilegt með þessi 7.000 störf, og ég held að það sé ekki búið að ná helmingnum af þeim út, að settar eru girðingar á þá sem eru verst settir, sem eru á félagsbótum, frekar en að segja við alla sem eru á félagsbótum: Komið, þið megið koma inn í þetta dæmi, bara til að fá fólk aðeins í virkni. Ef um er að ræða hjón mega þau ekki fá nema 340.000 kr. áður en það fer að skerðast á fullu. Ef þetta átti að hjálpa fólki hefði átt að taka niður allar girðingar í stað þess að hafa þetta allt svo niðurnjörvað að þeir sem vildu fengju ekki og það væru erfiðleikar við að fá aðra til að koma inn í kerfið.