fjáraukalög 2021.
Forseti. Já, þetta er það sem mér finnst einmitt einna merkilegast í öllu þessu kófi hérna, ríkisstjórnin er hvergi tilbúin til þess í rauninni að monta sig af eigin afrekum, enda eru þau fá og langt á milli þeirra. Eins og ég horfi á þetta þá kemur ríkisstjórnin með einhverja vinnumarkaðsaðgerð og segir að hún eigi eftir að leysa vandann en útskýrir síðan ekki í framhaldinu hver ávinningurinn var af þeim aðgerðum, hversu mikið af vandanum þær leystu. Þá verður maður að álykta sem svo að í rauninni hafi þetta ekki leyst vandann, ef hv. þingmaður áttar sig á þessum mun þarna. Þegar við spyrjum hver ávinningurinn hafi verið af því að fara út í þessa aðgerð frekar en einhverja aðra eru svörin alltaf: Við settum fullt af peningum í þetta. En það er ekki það sem ég er að spyrja um. Mér er alveg sama hversu mikinn pening þú setur í aðgerðina ef þú getur ekki sagt mér hver ávinningurinn af henni var. Ef settir eru í hana 100 milljarðar, hvað kom út úr því? Komu 120 milljarðar út úr því? Voru búin til einhver verðmæti eða sköpuð einhver hagræðing eða eitthvað því um líkt miðað við annan kostnað sem hefði komið á móti? Ef ekki hefði verið farið í þessa aðgerð hefði þá verið kostnaður upp á 50 milljarða en af því að farið var í aðgerðina fyrir 40 milljarða voru sparaðir 10 milljarðar? Hvernig er jafnan? Við fáum aldrei svoleiðis útskýringar. Af hverju ættum við að samþykkja fjárheimildir þegar við vitum ekki hver árangur þeirra er? Og af hverju ættum við að sætta okkur við svör, þegar við spyrjum um árangur aðgerða, á borð við: Við settum 10 milljarða í þetta. Ég veit að það var gert en það sem við fengum úr því á að vera svarið.